- Lágmarksiðgjald lækna er 15,5% af launum, læknar greiða 4% og heilbrigðisstofnanir 11,5%
- Lágmarksiðgjaldið skiptist þannig að 8% fer í samtryggingarsjóð og 7,5% í séreignarsjóð
- Vinnuveitandi greiðir 2% á móti 2% viðbótarlífeyrissparnaði lækna
- Endurhæfingarsjóður er 0,13% af launum
Viðbótarlífeyrissparnaður er hagstæðastur
Vegna stuttrar starfsævi er elli- og örorkulífeyrir hjá læknum lægri en hjá flestum öðrum stéttum. Til þess að hafa sambærileg réttindi og aðrar starfsstéttir þurfa læknar þess vegna að spara meira og kaupa viðbótarörorkutryggingar.
Vegna mótframlags launagreiðenda og hagstæðra skattareglna er viðbótarlífeyrissparnaður hagkvæmasta sparnaðarleið sem völ er á. Við ráðleggjum læknum eindregið að gera samning um lífeyrissparnað við Almenna lífeyrissjóðinn og greiða að minnsta kosti 2% viðbótariðgjald en þá fá þeir 2% mótframlag samkvæmt kjarasamningi.
Afkomutrygging
Til að bæta tryggingavernd vegna starfsorkumissis er sjóðfélögum ráðlagt að kaupa afkomutryggingu sem greiðir örorkubætur til 65 ára aldurs eða aðra tryggingu sem greiðir bætur við starfsorkumissi. Það er skattalega hagkvæmt að kaupa afkomutryggingu með milligöngu lífeyrissjóðsins.
Sjóðurinn hefur gert samkomulag við Sjóvá-Almennar líftryggingar hf. um að sjóðfélagar geti keypt afkomutryggingu með milligöngu sjóðsins. Iðgjöld afkomutryggingarinnar eru skuldfærð mánaðarlega af viðbótariðgjaldi og eru því greidd af óskattlögðu fé. Hins vegar er greiddur tekjuskattur af tryggingarbótum eins og öðrum launatekjum.
Sjúkra- og slysatrygging
Til viðbótar er skynsamlegt að bæta við sjúkra- og slysatryggingu og sjúkdómatryggingu og haga samsetningu viðbótarörorkutrygginga þannig að við starfsorkutap komi eingreiðsla til að nota fyrstu mánuðina eða árin meðan verið er að aðlagast nýju lífi og nýjum aðstæðum.
Fjárhæð eingreiðslubóta ætti að setja í samhengi við laun og miða við að bæturnar tryggi eins til tveggja ára laun. Með aldrinum minnkar þörfin á eingreiðslutryggingunum, eftir því sem eignir vaxa og skuldbindingar minnka.
- Afkomutrygging sem tryggir 70% af launum fyrstu 3 árin hjá þeim sem eru að hefja störf og 20-30% af launum eftir það
- Sjúkra- og slysatrygging sem greiðir ein árslaun við örorku
- Sjúkdómatrygging sem greiðir ein árslaun við greiningu alvarlegra sjúkdóma
- Líftrygging sem greiðir langtímaskuldir og a.m.k. tvenn árslaun