Beint í leiðarkerfi

Leiðsögumenn

Lífeyrisiðgjöld leiðsögumanna

  • Lágmarksiðgjald er 12% af launum, framlag leiðsögumanna 4% og vinnuveitanda 8%
  • Mótframlag vinnuveitanda í viðbótarlífeyrissparnaði er 2% á móti a.m.k. 2% framlagi starfsmanns
  • Með lífeyrisiðgjöldum er skilað inn félagsgjaldi og iðgjöldum í sjúkra- og endurmenntunarsjóð
  • Sjúkrasjóður er 1,5% af launum, endurmenntunarsjóður 0,25% og félagsgjald er 1% af launum
  • Endurhæfingarsjóður er 0,13% af launum 

Viðbótarlífeyrissparnaður er hagstæðastur

Vegna mótframlags launagreiðenda og hagstæðra skattareglna er viðbótarlífeyrissparnaður hagkvæmasta sparnaðarleið sem völ er á. Við ráðleggjum leiðsögumönnum eindregið að gera samning um lífeyrissparnað við Almenna lífeyrissjóðinn og greiða að minnsta kosti 2% viðbótariðgjald en þá fá þeir 2% mótframlag samkvæmt kjarasamningi.

Leiðsögumenn greiddu áður í Lífeyrissjóð Félags leiðsögumanna sem var séreignarsjóður. Þeir sem greiða eingöngu í séreignarsjóð ávinna sér ekki örorkulífeyrisréttindi líkt og sjóðfélagar sem greiða í samtryggingarsjóð. Leiðsögumenn eiga því ekki áunnin örorkulífeyrisréttindi frá þessu tímabili og þess vegna getur verið ráðlegt að bæta við sig viðbótartryggingum til að verja sig og sína fyrir tekjumissi vegna örorku eða starfsorkumissi.

Afkomutrygging

Til að bæta tryggingavernd vegna starfsorkumissis er sjóðfélögum ráðlagt að kaupa afkomutryggingu sem greiðir örorkubætur til 65 ára aldurs eða aðra tryggingu sem greiðir bætur við starfsorkumissi. Það er skattalega hagkvæmt að kaupa afkomutryggingu með milligöngu lífeyrissjóðsins. 

Sjóðurinn hefur gert samkomulag við Sjóvá-Almennar líftryggingar hf. um að sjóðfélagar geti keypt afkomutryggingu með milligöngu sjóðsins. Iðgjöld afkomutryggingarinnar eru skuldfærð mánaðarlega af viðbótariðgjaldi og eru því greidd af óskattlögðu fé. Hins vegar er greiddur tekjuskattur af tryggingabótum eins og öðrum launatekjum.

Sjúkra- og slysatrygging

Til viðbótar er skynsamlegt að bæta við sjúkra- og slysatryggingu og sjúkdómatryggingu og haga samsetningu viðbótarörorku­trygginga þannig að við orkutap komi eingreiðsla til að nota fyrstu mánuðina eða árin meðan verið er að aðlagast nýju lífi og nýjum aðstæðum.

Fjárhæð eingreiðslubóta ætti að setja í samhengi við laun og miða við að bæturnar tryggi eins til tveggja ára laun. Með aldrinum minnkar þörfin á eingreiðslutryggingunum, eftir því sem eignir vaxa og skuldbindingar minnka.

 

Ráðlagðar viðbótartryggingar:

  • Afkomutrygging sem tryggir 70% af launum fyrstu 3 árin hjá þeim sem eru að hefja störf og 20-30% af launum eftir það
  • Sjúkra- og slysatrygging sem greiðir ein árslaun við örorku
  • Sjúkdómatrygging sem greiðir ein árslaun við greiningu alvarlegra sjúkdóma
  • Líftrygging sem greiðir langtímaskuldir og a.m.k. tvenn árslaun