- Skylda er að greiða að lágmarki 12% af launum eða reiknuðu endurgjaldi í lífeyrissjóð
- Framlag einstaklings til viðbótarlífeyrissparnaðar getur verið allt að 2%
- Ekkert þak er á mótframlagi en skattalegt hagræði fer eftir rekstrarformi
- Endurhæfingarsjóður er 0,13% af launum
Viðbótarlífeyrissparnaður er hagstæður
Sjálfstæðum atvinnurekendum er heimilt að spara allt að 2% í viðbótarlífeyrissparnað og færa til frádráttar á persónulegu skattframtali. Hægt er að láta reksturinn greiða mótframlag og er það frádráttarbær kostnaður. Það fer hins eftir því í hvaða formi reksturinn er hvort það borgar sig fyrir þá að láta reksturinn greiða mótframlag til lífeyrissparnaðar eða ekki.
- Ef reksturinn er á eigin kennitölu getur verið skynsamlegt að greiða mótframlag og lækka þannig hagnað af rekstrinum. Með því móti er greiðslu tekjuskatts frestað þar til viðbótarlífeyrissparnaðurinn er greiddur út.
- Ef sjálfstæður rekstur er hins vegar í formi einkahlutafélags borgar sig ekki að einkahlutafélagið greiði mótframlag til lífeyrissparnaðar þar sem það er skattalega óhagkvæmt. Einstaklingar, sem eiga einkahlutafélög, greiða lægri skatta af hagnaði til eigenda (20% tekjuskattur og 20% fjármagnstekjuskattur af arðgreiðslum) en einstaklingar greiða í tekjuskatt (37,34% - 46,24%) af tekjum að frádregnum persónuafslætti árið 2012). Munurinn er of mikill til að það borgi sig fyrir eigendur einkahlutafélaga að greitt sé mótframlag vinnuveitanda til lífeyrissparnaðar.
Afkomutrygging
Fyrir sjálfstæða atvinnurekendur er mjög mikilvægt að kynna sér þá tryggingavernd sem í boði er og kanna hvort sé þörf að bæta við sig auka tryggingum.
Til að bæta tryggingavernd vegna starfsorkumissis er sjóðfélögum ráðlagt að kaupa afkomutryggingu sem greiðir örorkubætur til 65 ára aldurs eða aðra tryggingu sem greiðir bætur við starfsorkumissi. Það er skattalega hagkvæmt að kaupa afkomutryggingu með milligöngu lífeyrissjóðsins.
Sjóðurinn hefur gert samkomulag við Sjóvá-Almennar líftryggingar hf. um að sjóðfélagar geti keypt afkomutryggingu með milligöngu sjóðsins. Iðgjöld afkomutryggingarinnar eru skuldfærð mánaðarlega af viðbótariðgjaldi og eru því greidd af óskattlögðu fé. Hins vegar er greiddur tekjuskattur af tryggingarbótum eins og öðrum launatekjum.
Sjúkra- og slysatrygging
Til viðbótar getur verið skynsamlegt að bæta við sjúkra- og slysatryggingu og sjúkdómatryggingu og haga samsetningu viðbótarörorkutrygginga þannig að við starfsorkutap komi eingreiðsla til að nota fyrstu mánuðina eða árin meðan verið er að aðlagast nýju lífi og nýjum aðstæðum.
Fjárhæð eingreiðslubóta ætti að setja í samhengi við laun og miða við að bæturnar tryggi eins til tveggja ára laun. Með aldrinum minnkar þörfin á eingreiðslutryggingunum, eftir því sem eignir vaxa og skuldbindingar minnka.
- Afkomutrygging sem tryggir 70% af launum fyrstu 3 árin hjá þeim sem eru að hefja störf og 20-30% af launum eftir það
- Sjúkra- og slysatrygging sem greiðir ein árslaun við örorku
- Sjúkdómatrygging sem greiðir ein árslaun við greiningu alvarlegra sjúkdóma
- Líftrygging sem greiðir langtímaskuldir og a.m.k. tvenn árslaun.