Beint í leiðarkerfi

Tæknifræðingar

Lífeyrisiðgjöld tæknifræðinga

  • Almennt er lágmarksiðgjald tæknifræðinga 12% af launum
  • Iðgjöld tæknifræðinga sem vinna eftir kjarasamningi KTFÍ og FRV er 12% af launum
  • Iðgjöld tæknifræðinga sem vinna eftir kjarasamningi Launanefndar sveitafélaga við KTFÍ er 15,5% af launum
  • Iðgjöld tæknifræðinga sem vinna hjá ríkinu og greiða í Almenna er 15,5% af launum
  • Mótframlag vinnuveitanda er 2% á móti a.m.k. 2% viðbótarlífeyrissparnaði tæknifræðings
  • Að hámarki getur framlag tæknifræðings til viðbótarlífeyrissparnaðar orðið 2% af launum
  • Endurhæfingarsjóður er 0,13% af launum 

 

Viðbótarlífeyrissparnaður er hagstæður

Vegna mótframlags launagreiðenda og hagstæðra skattareglna er viðbótarlífeyrissparnaður hagkvæmasta sparnaðarleið sem völ er á. Við ráðleggjum tæknifræðingum eindregið að gera samning um lífeyrissparnað við Almenna lífeyrissjóðinn og greiða að minnsta kosti 2% viðbótariðgjald en þá fá þeir 2% mótframlag samkvæmt kjarasamningi.

Afkomutrygging

Tæknifræðingar greiddu áður í Lífeyrissjóð Tæknifræðingafélags Íslands sem var séreignarsjóður. Þeir sem greiða eingöngu í séreignarsjóð ávinna sér ekki örorkulífeyris­réttindi líkt og sjóðfélagar sem greiða í samtryggingarsjóð. Tæknifræðingar eiga því ekki áunnin örorkulífeyrisréttindi frá þessu tímabili og þess vegna getur verið ráðlegt að bæta við sig viðbótartryggingum til að verja sig og sína fyrir tekjumissi vegna örorku eða starfsorkumissi.

Til að bæta tryggingavernd vegna starfsorkumissis er sjóðfélögum ráðlagt að kaupa afkomutryggingu sem greiðir örorkubætur til 65 ára aldurs eða aðra tryggingu sem greiðir bætur við starfsorkumissi. Það er skattalega hagkvæmt að kaupa afkomutryggingu með milligöngu lífeyrissjóðsins.

Sjóðurinn hefur gert samkomulag við Sjóvá-Almennar líftryggingar hf. um að sjóðfélagar geti keypt afkomutryggingu með milligöngu sjóðsins. Iðgjöld afkomutryggingarinnar eru skuldfærð mánaðarlega af viðbótariðgjaldi og eru því greidd af óskattlögðu fé. Hins vegar er greiddur tekjuskattur af tryggingarbótum eins og öðrum launatekjum.

Sjúkra- og slysatrygging

Til viðbótar er skynsamlegt að bæta við sjúkra- og slysatryggingu og sjúkdómatryggingu og haga samsetningu viðbótarörorku­trygginga þannig að við starfsorkutap komi eingreiðsla til að nota fyrstu mánuðina eða árin meðan verið er að aðlagast nýju lífi og nýjum aðstæðum.

Fjárhæð eingreiðslubóta ætti að setja í samhengi við laun og miða við að bæturnar tryggi eins til tveggja ára laun. Með aldrinum minnkar þörfin á eingreiðslutryggingunum, eftir því sem eignir vaxa og skuldbindingar minnka. 

Ráðlagðar viðbótartryggingar:

  • Afkomutrygging sem tryggir 70% af launum fyrstu 3 árin hjá þeim sem eru að hefja störf og 20-30% af launum eftir það
  • Sjúkra- og slysatrygging sem greiðir ein árslaun við örorku
  • Sjúkdómatrygging sem greiðir ein árslaun við greiningu alvarlegra sjúkdóma
  • Líftrygging sem greiðir langtímaskuldir og a.m.k. tvenn árslaun.