- Makalífeyrir er greiddur úr samtryggingarsjóði við fráfall sjóðfélaga
- Makalífeyrir er helmingur af fjárhæð örorkulífeyris
- Fullur makalífeyrir er greiddur a.m.k. í tvö ár og helmingur í eitt ár til viðbótar
- Makalífeyrir er greiddur lengur ef yngsta barn sjóðfélaga er yngra en 20 ára eða ef maki er 50% öryrki og yngri en 67 ára
- Inneign í séreignarsjóði skiptist á milli maka og barna skv. erfðalögum, þ.e. 2/3 til maka ef erfðaskrá hefur ekki verið gerð
- Hlutur maka í séreignarsjóði greiðist út á sjö árum
Maki telst sá eða sú sem við andlátið var í hjúskap með sjóðfélaga, staðfestri samvist eða óvígðri sambúð, enda hafi fjárfélagi ekki verið slitið fyrir andlát sjóðfélagans. Með óvígðri sambúð er átt við sambúð karls og konu sem eiga sameiginlegt lögheimili, eru samvistum, eiga barn saman eða konan er þunguð eða sambúðin hefur varað samfleytt í að minnsta kosti tvö ár.
Makalífeyrir
Makalífeyrir er greiddur eftirlifandi maka sjóðfélaga. Ef sjóðfélagi var hættur að greiða iðgjöld í lífeyrissjóð miðast fjárhæðin eingöngu við geymd áunnin réttindi. Ef sjóðfélagi hafði greitt árlega lágmarksfjárhæð til lífeyrissjóðs í að minnsta kosti 3 ár af síðustu 4 og 6 mánuði af síðustu 12 fyrir andlátið, er auk þess tekið með í reikninginn hvaða réttindi hann hefði áunnið sér með áframhaldandi greiðslum til 65 ára aldurs. Makalífeyrir er einnig greiddur ef sjóðfélaginn naut elli- eða örorkulífeyris við andlátið.