- Örorkulífeyrir er greiddur ef orkutap er metið 50% eða meira
- Fjárhæð örorkulífeyris miðast við áunnin lífeyrisréttindi og framreiknuð réttindi ef sjóðfélagi uppfyllir ákveðin skilyrði
- Örorkulífeyrir greiðist til 70 ára aldurs og þá hefjast greiðslur ellilífeyris
- Við 100% örorku greiðist séreignarsjóður út á 7 árum, annars lengist útgreiðslutími
Sjóðfélagi á rétt á örorkulífeyri úr tryggingadeild ef hann verður fyrir orkutapi sem metið er 50% eða meira og hefur orðið vanhæfur til að gegna starfi sínu. Örorkulífeyrir er miðaður við áunnin lífeyrisréttindi og framreiknuð réttindi ef sjóðfélagi uppfyllir eftirfarandi skilyrði.
- Sjóðfélagi hefur greitt til samtryggingarsjóðs Almenna lífeyrissjóðsins í a.m.k. þrjú ár á undanfarandi fjórum árum og greitt eigi minna en 41.390 kr. hvert ár. Fjárhæðin er verðtryggð og miðar við vísitölu neysluverðs í janúar 2005, gildi 239,0.
- Sjóðfélagi hefur greitt til samtryggingarsjóðs Almenna lífeyrissjóðsins í a.m.k. sex mánuði á síðasta tólf mánaða tímabili.
- Sjóðfélagi hefur ekki orðið fyrir orkutapi sem rekja má til ofnotkunar áfengis, lyfja eða fíkniefna.
Örorkulífeyrir greiðist ekki fyrstu þrjá mánuði eftir orkutap og greiðist ekki ef orkutapið hefur varað skemur en sex mánuði. Örorkulífeyrir er eingöngu greiddur ef sjóðfélagi hefur orðið fyrir sannanlegri tekjuskerðingu af völdum orkutapsins.
Fjárhæð örorkulífeyris
- Fjárhæð örorkulífeyris er samtalan af áunnum réttindum og framreiknuðum réttindum.
- Með áunnum réttindum er átt við réttindi sem sjóðfélagi hefur áunnið sér með þegar greiddum iðgjöldum.
- Réttindi sjóðfélaga til örorkulífeyris eru reiknuð í krónum og ráðast réttindi af því iðgjaldi sem greitt er í samtryggingarsjóðinn ár hvert. Í Almenna lífeyrissjóðnum er tekið tillit til ávöxtunartíma iðgjalda við ávinnslu örorkulífeyrisréttinda og ráðast réttindin af aldri þegar iðgjald er greitt. Þetta þýðir að yngri sjóðfélagar fá meiri réttindi en eldri fyrir sama iðgjald og því fær hver sjóðfélagi réttindi í hlutfalli við sparnaðartíma og tryggingalega áhættu.
- Áunnin réttindi eru verðtryggð og breytast í samræmi við breytingu vísitölu neysluverðs.
- Þegar sjóðfélagi á rétt á framreikningi eru réttindi reiknuð eins og ef sjóðfélagi hefði haldið áfram að greiða í sjóðinn frá því að hann missti starfsorku til 65 ára aldurs. Við framreikning réttinda skal reikna með meðalinnborgun næstu þriggja almanaksára áður en orkutapið átti sér stað.
- Ef sjóðfélagi á rétt á framreikningi greiðir tryggingadeildin mánaðarlega iðgjald í eftirlaunadeild þannig að sjóðfélagi heldur áfram að byggja upp eftirlaunasjóð til að greiða ævilangan ellilífeyri frá 70 ára aldri til æviloka.
- Fullur örorkulífeyrir er greiddur m.v. 100% örorku en lífeyrisgreiðslur eru hlutfallslegar ef orkutapið er á bilinu 50% til 100%.