Beint í leiðarkerfi

Réttindi í fleiri sjóðum

Samkomulag milli lífeyrissjóða

  • Ekki er heimilt að flytja lífeyrisréttindi á milli lífeyrissjóða fyrr en við töku lífeyris
  • Sótt er um lífeyri í þeim sjóði sem síðast var greitt til og er umsóknin send áfram til annarra lífeyrissjóða
  • Lífeyrissjóðir viðhalda sameiginlegri skrá með upplýsingum til hvaða lífeyrissjóða greitt hefur verið

Flestir greiða í fleiri en einn lífeyrissjóð yfir starfsævina. Ástæðan er sú að í kjara- og ráðningarsamningum er kveðið á um í hvaða lífeyrissjóð á að greiða. Réttindi tapast ekki þótt sjóðfélagi eigi réttindi í nokkrum lífeyrissjóðum.

Langflestir lífeyrissjóðir á Íslandi hafa undirritað samkomulag um samskipti lífeyrissjóða. Samkvæmt samkomulaginu þurfa sjóðfélagar aðeins að sækja um lífeyri hjá einum sjóði og sér hann um að safna lífeyrisgreiðslum saman. Gert er ráð fyrir að sjóðfélagar sæki um lífeyri hjá þeim sjóði sem þeir greiddu síðast í eða hjá þeim sjóði þar sem þeir eiga mest réttindi.

Stærsti lífeyrissjóðurinn sem er ekki í samkomulaginu er B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR). Því þarf sérstaklega að sækja um greiðslur lífeyris hjá þeim sjóði.

Lífeyrissjóðirnir viðhalda sameiginlegri skrá um greiðslur sjóðfélaga í lífeyrissjóði. Í skránni kemur fram í hvaða lífeyrissjóði sjóðfélagi hefur greitt og hvenær hann greiddi síðast til hvers sjóðs. Nafnaskrá lífeyrissjóðanna er að finna á yfirliti yfir inneign og réttindi í Almenna lífeyrissjóðnum í Netbanka Íslandsbanki.