Beint í leiðarkerfi

Samtryggingarsjóður

Samtryggingarsjóður

Markmið samtryggingarsjóðsins er að tryggja sjóðfélögum ellilífeyri til æviloka og verja þá og fjölskyldur þeirra fyrir tekjumissi vegna örorku eða andláts.

Með greiðslum í samtryggingarsjóð ávinna sjóðfélagar sér rétt á ævilöngum ellilífeyrisgreiðslum frá 60 ára aldri, örorku- og barnalífeyri við starfsorkumissi og maka- og barnalífeyrir til eftirfarandi maka og barna við fráfall.

Ellilífeyrir til æviloka

Ellilífeyrir er greiddur frá 60 til 70 ára aldurs til æviloka. Nánar.

Áfallalífeyrir við örorku eða fráfall

Örorkulífeyrir er greiddur ef sjóðfélagi missir starfsgetu og orkutap er metið 50% eða meira. Örorkuréttindi í Almenna lífeyrissjóðnum eru með því besta sem gerist meðal lífeyrissjóða. Nánar.

Makalífeyrir er greiddur úr samtryggingarsjóði við fráfall sjóðfélaga. Makalífeyrir er alltaf greiddur í 2,5 ár og lengur ef yngsta barn sjóðfélaga er yngra en 20 ára. Nánar.

Betri barnalífeyrir. Sjóðurinn greiðir tvöfalt hærri barnalífeyri en lágmark samkvæmt lögum (fjórfalt hærri barnalífeyri ef sjóðfélagi á ekki maka). Nánar.

Eignir samtryggingarsjóðs

Eignir samtryggingarsjóðs eru ávaxtaðar í aðgreindu verðbréfasafni og er stefnt að því að skuldabréf vegi 60% og hlutabréf 40%. Nánar.