Beint í leiðarkerfi

Afkomutrygging

Afkomutrygging í stuttu máli

Hvað?

  • Örorkutrygging sem greiðir örorkubætur til allt að 65 ára aldurs við 50% starfsorkumissi.
  • Tryggingin lækkar eftir því sem réttindi í lífeyrissjóðnuum hækka.
  • Hægt að tryggja allt að 90% af launum.

Af hverju?

  • Lágmarkar tekjumissi við skerðingu starfsgetu vegna sjúkdóms eða slyss.
  • Það tekur ungt fólk sem er að hefja störf á vinnumarkaði 3 ár að öðlast full réttindi í lífeyrissjóðum.
  • Örorkubætur lífeyrissjóða og Tryggingastofnunar eru lægri en launin sem greitt er af. Tekjulækkun er óhjákvæmileg komi til örorku.
  • Hagkvæmt er að kaupa trygginguna með þessum hætti. Iðgjald er greitt með óskattlögðu fé.
  • Fyrir hverja?

    • Starfandi einstaklinga sem greiða í lífeyrissjóð og hafa ekki bætt við sig örorkutryggingu.
    • Ungt fólk sem er að hefja störf á vinnumarkaði og er ekki búið að öðlast full réttindi í lífeyrissjóði.

Tryggir fjárhagslegt öryggi

Almenni lífeyrissjóðurinn hefur samið við Sjóvá um að bjóða sjóðfélögum afkomutryggingu sem er sérsniðin að þörfum þeirra. Sjóðfélagi velur sér tryggingarfjárhæð sem breytist árlega eftir örorkulífeyrisréttindum í sjóðnum. Afkomutrygging stuðlar að fjárhagslegu öryggi á öllum æviskeiðum og tryggir þig fyrir tekjumissi ef þú missir starfsgetu vegna slyss eða sjúkdóms.

Afsláttur af iðgjaldi

Iðgjald fyrir trygginguna dregst frá viðbótariðgjaldi sem greitt er inn í Almenna lífeyrissjóðinn. Iðgjaldið er því greitt áður en tekjuskattur er reiknaður af launum. Þannig lækka iðgjöldin sem nemur tekjuskattinum og munar um minna. Komi til greiðslu bóta er greiddur tekjuskattur af þeim eins og öðrum tekjum, sama hvort iðgjöldin eru greidd af óskattlögðu fé eða ekki. Með fullu skatthlutfalli er hægt að njóta hátt í 36% afsláttar af iðgjaldinu. 

Vernd sem allir þurfa
 
Afkomutrygging Sjóvá tryggir mánaðarlegar tekjur til 65 ára aldurs ef starfsorka skerðist um 50% eða meira af völdum sjúkdóms eða slyss og rétthafi verður fyrir launaskerðingu af þeim sökum. Fullar bætur greiðast við 100% örorku en hlutfallslega fyrir skerðingu starfsorku á bilinu 50 til 100%. Tryggingin er sérstaklega hentug til að bæta við örorkulífeyrisréttindi í lífeyrissjóðum því tryggingin er langtímatrygging.
 

Hvert sný ég mér?

Tryggingaráðgjafar Sjóvá veita allar nánari upplýsingar um þjónustuna. Þú getur haft samband í síma 440 2000 eða pantað að ráðgjafi Sjóvá hafi samband við þig. Einnig veitir Almenni lífeyrissjóðurinn nánari upplýsingar um þjónustuna í síma 510 2500.