Beint í leiðarkerfi

Ævisafn I

Ævisafn I - mesta vægi hlutabréfa

Ævisafn I hentar þeim sem eru að ávaxta lífeyrissparnað sinn til langs tíma. Þetta safn hentar best sjóðfélögum á aldrinum 20-44 ára. Ávöxtunartími lífeyrisinneignar er að jafnaði 20-25 ár. Markmið safnsins er langtímahækkun eigna með fjárfestingum í hlutabréfum að mestu leyti. Stefnt er að því að lítill hluti safnsins sé í skuldabréfum til að draga úr sveiflum.

Fjárfestingarstefna Ævisafns I er 40% skuldabréf og 60% hlutabréf. Eignir í hlutabréfum eru vel dreifðar á lönd, atvinnugreinar og mikinn fjölda félaga, sem dregur mjög úr áhættunni. Safnið fjárfestir nær eingöngu í hlutabréfasjóðum með mikilli áhættudreifingu og því hefur afkoma og gengisþróun einstakra fyrirtækja (og gjaldþrot) lítil áhrif á heildarávöxtun.

Hlutabréf gefa hæstu ávöxtunina til langs tíma og þar sem ávöxtunartími safnsins er mjög langur er stefnt að því að meiri hluti eigna verði hlutabréf. Vegna þessa má búast við miklum sveiflum í ávöxtun safnsins en á löngum tíma er reiknað með að sjóðfélögum verði umbunað fyrir sveiflurnar með hærri ávöxtun.

Ævisafn I var stofnað 1. júlí 1998.

 

Skipting skuldabréfa

Gengisþróun

Upplýsingar af markaði

Gengi 1802,8
Dagsetning gengis 10.09.2010
Breyting frá síðustu skráningu 0,390%
52 vikna lágmark 1772,1
52 vikna hámark 1909,8

Orðsending frá sjóðstjóra

Ævisafn I
Gengi Ævisafns I lækkaði um 0,3% í júlí og hefur lækkað um 2,3% á árinu. Vísitala aðallista Kauphallarinnar (OMXIPI) hefur hækkað um 17,0% á árinu, heimsvísitala hlutabréfa (MSCI) hefur lækkað um um 2,0% í dollurum og hefur lækkað um 5,1% í krónum. Viðmiðunarvísitala skuldabréfasafnsins hefur hækkað um 6,7% frá áramótum.

Ávöxtun skuldabréfaeignar safnsins frá áramótum er 5,4%, ávöxtun innlendrar hlutabréfaeignar 8,7% og erlendra hlutabréfa -7,3%.

Ágúst 2010