Innlánasafn
Almenni lífeyrissjóðurinn býður sjóðfélögum að greiða iðgjöld í séreignarsjóð inn á Innlánasafn sem ávaxtar eignir á innlánsreikningum. Innlánasafnið hentar fyrir þá sem vilja litlar verðsveiflur á inneign sinni. Safnið hentar sérstaklega vel fyrir þá sem byrjaðir að taka lífeyri og ganga á inneign sína.
Innlánasafnið er ávaxtað að öllu leyti á innlánsreikningum. Ávöxtun verður sambærileg og ávöxtun á verðtryggðum bankareikningum með hæstu vöxtum á hverjum tíma og breytast vextirnir með almennu vaxtastigi í landinu. Eignum Innlánasafnsins er dreift á a.m.k. fjórar innlánsstofnanir.
Innstæður í innlendum bönkum og sparisjóðum eru tryggðar samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands frá 3. febrúar 2009. Í yfirlýsingunni kemur fram að hún verður ekki afnumin fyrr en hið nýja íslenska fjármálakerfi, með breyttri umgjörð, hefur sannað sig og þá verður gefinn aðlögunartími.
Innlán eru forgangskrafa innlánsstofanana samkvæmt neyðarlögum vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði.
Inneignir sjóðfélaga í Innlánasafninu falla undir ákvæði laga nr. 98/1999 um innstæðutryggingar.
Upplýsingablað - Innlánasafn
Orðsending frá sjóðstjóra
Innlánasafn hækkaði í desember um 0,3% og hefur hækkað um 7,8% á árinu. Á árinu hefur safnið hækkað að mestu vegna umsaminna vaxtakjara á innlánsreikningum en einnig vegna verðbólgu á fyrri hluta ársins þar sem innlánsreikningar safnsins eru að mestu leyti verðtryggðir (verðtryggingarhlutfallið er nú 92,6%).
Innlánsvextir innlánasafnsins hafa lækkað lítillega á árinu. Vísitala neysluverðs hefur breyst frá áramótum um 5,2%.
Janúar 2012