Almenni lífeyrissjóðurinn býður sjóðfélögum að ávaxta sparnað sinn í safni sem fjárfestir í löngum ríkisskuldabréfum. Safnið getur einnig fjárfest í innlánum banka. Safnið fjárfestir að stærstum hluta í skuldabréfum útgefnum af Íbúðalánasjóði og er áætlaður meðaltími bréfanna 8 – 12 ár. Skuldabréfin eru að mestu leyti verðtryggð.
Skuldaraáhætta í safninu er í lágmarki þar sem fjárfest er í skuldabréfum með ábyrgð íslenska ríkisins. Sveiflur í ávöxtun safnsins geta verið töluverðar þar sem meðaltími skuldabréfaeignar safnsins er langur. Safnið hentar vel fyrir þá sem vilja lágmarks skuldaraáhættu, þola nokkrar sveiflur í ávöxtun og hyggjast ekki ganga á inneign sína á næstu 12 mánuðum.
Upplýsingablað - Ríkissafn - Langt
|
|
| Gengi |
1511,3 |
| Dagsetning gengis |
05.02.2012 |
| Breyting frá síðustu skráningu |
0,000% |
| 52 vikna lágmark |
1315,0 |
| 52 vikna hámark |
1523,5 |
Orðsending frá sjóðstjóra
Ríkissafn langt hækkaði í desember um 1,2% og hefur hækkað um 11,9% á árinu. Verðbólguvæntingar, væntingar um vaxtaþróun og skortur á fjárfestingakostum eru helstu áhrifavaldar á þróun safnsins frá áramótum.
Ávöxtunarkrafa á verðtryggðum ríkisskuldabréfum lækkaði um 1-2 prósentustig á árinu 2011. Kröfulækkunin var einkum drifin áfram af aukinni eftirspurn eftir ríkisskuldabréfum vegna lækkandi vaxta en einnig vegna þess að framboð hefur reynst minna en væntingar voru um. Ávöxtunarkrafa langra verðtryggðra bréfa er nú um 2,5%.
Vegna gjaldeyrishafta og skorts á innlendum fjárfestingakostum er líklegt að ávöxtunarkrafa á ríkisskuldabréfum verði áfram lág á komandi mánuðum.
Janúar 2012