Beint í leiðarkerfi

Ríkissafn - Stutt

Almenni lífeyrissjóðurinn býður sjóðfélögum að ávaxta sparnað sinn í safni sem fjárfestir að mestu leyti í óverðtryggðum ríkisskuldabréfum; ríkisvíxlum og ríkisbréfum. Áætlaður meðaltími bréfanna er 1 – 3 ár. Safnið getur einnig fjárfest í innlánum banka.

Skuldaraáhætta í safninu er í lágmarki þar sem fjárfest er í skuldabréfum með ábyrgð íslenska ríkisins. Sveiflur í ávöxtun safnsins eru litlar. Safnið hentar vel fyrir þá sem vilja lágmarks skuldaraáhættu og hyggjast ganga á inneign sína á næstu 12 mánuðum.

Upplýsingablað - Ríkissafn - Stutt

Eignir

Innlend skuldabréf og laust fé

Gengisþróun

Upplýsingar af markaði

Gengi 1184,8
Dagsetning gengis 05.02.2012
Breyting frá síðustu skráningu 0,000%
52 vikna lágmark 1144,2
52 vikna hámark 1190,2

Orðsending frá sjóðstjóra

Ríkissafn stutt hækkaði í desember um 0,4% og hefur hækkað um 2,9% á árinu. Lágt vaxtaumhverfi og væntingar um verðbólgu höfðu hvað mest áhrif á þróun safnsins árið 2011.

Ávöxtunarkrafa á óverðtryggðum stuttum ríkisskuldabréfum hækkaði á árinu. Nafnvextir skuldabréfa í eigu safnsins skiluðu ávöxtun safnsins á árinu.

Vegna gjaldeyrishafta og skorts á innlendum fjárfestingakostum er líklegt að ávöxtunarkrafa á ríkisskuldabréfum verði áfram lág á komandi mánuðum og gæti lækkað. Vaxtastig, framboð fjárfestingakosta og verðbólguvæntingar munu hafa hvað mest áhrif á þróun safnsins á árinu 2012.



Janúar 2012