13.01.2012
Hækkun þrátt fyrir sveiflur ytra
Ævisafn I hækkaði um 6,5% á árinu 2011 sem jafngildir 1,2% raunávöxtun. Þróun á innlendum skuldabréfamarkaði hafði afgerandi áhrif á ávöxtun safnsins á árinu 2011.
- Þróun á innlendum skuldabréfamarkaði skilaði stærstum hluta af ávöxtun ársins. Markaðsvirði innlendra skuldabréfa hækkaði vegna áhrifa mikillar eftirspurnar og skorts á fjárfestingakostum, einkum vegna gjaldeyrishafta.
- Heimsvísitala hlutabréfa í bandaríkjadollar lækkaði um 5,5% en vegna veikingar krónunnar á sama tímabili gagnvart bandaríkjadollar hækkaði heimsvísitalan í krónum talið um 0,7%.
- Pólitískir atburðir og skuldavandi Evrópu og Bandaríkjanna munu á þessu ári eins og árið 2011 hafa mikil áhrif á fjármálamarkaði heimsins. Óvissa um lausnir við skuldavanda Evrópuríkja, mikil skuldsetning Bandaríkjanna og pólitískur órói víða um heim kemur til með að lita markaði á árinu 2012.
<<Til baka