Beint í leiðarkerfi

Upplýsingar

13.01.2012

Verðtryggð skuldabréf draga vagninn

Ævisafn III hækkaði um 9,8% á árinu 2011 sem jafngildir 4,4% raunávöxtun. Gengishækkun verðtryggðra ríkisskuldabréfa skýrir góða ávöxtun safnsins á árinu.

  • Þróun á innlendum skuldabréfamarkaði skilaði stærstum hluta af ávöxtun ársins. Markaðsvirði innlendra skuldabréfa hækkaði vegna áhrifa mikillar eftirspurnar og skorts á fjárfestingakostum einkum vegna gjaldeyrishafta.
  • Heimsvísitala hlutabréfa í bandaríkjadollar lækkaði um 5,5% en vegna veikingar krónunnar á sama tímabili gagnvart bandaríkjadollar hækkaði heimsvísitalan í krónum talið um 0,7%.
  • Pólitískir atburðir og skuldavandi Evrópu og Bandaríkjanna munu á þessu ári eins og árið 2011 hafa mikil áhrif á fjármálamarkaði heimsins. Óvissa um lausnir við skuldavanda Evrópuríkja, mikil skuldsetning Bandaríkjanna og pólitískur órói víða um heim kemur til með að lita markaði á árinu 2012.

<<Til baka