10.04.2012
Ágæt hækkun í miklum sveiflum
Ríkissafn langt hækkaði um 2,4% á fyrsta ársfjórðungi 2012. Verðbótaþáttur skýrir að stærstum hluta hækkunina á fyrsta fjórðungi.
- Ávöxtunarkröfur langra verðtryggðra íbúða- og ríkisskuldabréfa lækkaði á fjórðungnum Ávöxtunarkrafa á verðtryggðum ríkisskuldabréfum. Lækkunin var einkum drifin áfram af aukinni eftirspurn eftir ríkisskuldabréfum vegna framboðsskorts og mikillar fjárfestingarþarfar lífeyrissjóða í landinu en framboð fjárfestingakosta er enn með minnsta móti og umframeftirspurnin því mikil eins og verið hefur undanfarin misseri. Ávöxtunarkrafa á lengstu verðtryggðu íbúðabréfa¬flokkunum var í lok ársfjórðungsins 2,2-2,72% en á lengstu óverðtryggðu ríkisskuldabréfa¬flokkunum 7,5-7,7%.
<<Til baka