10.04.2012
Lækkun vegna væntra stýrivaxtahækkana
Ríkissafn stutt lækkaði um 0,1% á fyrsta ársfjórðungi 2012. Væntingar um vaxtahækkanir og stýrivaxtahækkun í mars réðu ávöxtun safnsins á fyrsta ársfjórðungi.
- Ávöxtunarkrafa á óverðtryggðum stuttum ríkisskuldabréfum hækkaði á fyrsta ársfjórðungi með tilheyrandi gengislækkun skuldabréfanna. Ávöxtunarkrafa styttri óverðtryggðum ríkisskuldabréfum voru í lok ársfjórðungsins á bilinu 4-5%.
- Hraði og umfang væntra stýrivaxtahækkana á komandi mánuðum munu ráða þróun safnsins á árinu.
<<Til baka