18.07.2012
Erlendir markaðir draga vagninn
Ævisafn III hækkaði um 5,4% á fyrri helmingi ársins. Hækkun erlendra eigna og veiking krónunnar skýra að mestu ávöxtun samtryggingarsjóðs á tímabilinu.
- Þróun á erlendum hlutabréfamörkuðum skilaði stærstum hluta ávöxtunar fjórðungsins. Heimsvísitala hlutabréfa í bandaríkjadollar hækkaði um 5,9% og í krónum talið um 8,5% vegna veikingar krónunnar á sama tímabili gagnvart bandaríkjadollar.
- Uppgjör sjóðsins við Glitni hafði í för með sér hækkun á bókfærðu virði erlendra eigna safnsins en fram að uppgjöri var í bókum sjóðsins miðað við ýtrustu kröfur Glitnis (sjá frétt).
- Verðbótaþáttur verðtryggðra eigna skilaði hækkun inn í safnið.
- Verðbólga, stýrivextir og framboð nýrra innlendra fjárfestingakosta munu hafa áhrif á þróun innlendra skuldabréfa á komandi mánuðum.
<<Til baka