Mótframlag launagreiðanda
Lífeyrissparnaður er sérstaklega góður sparnaðarkostur vegna mótframlags launagreiðanda sem bætist við framlag launþega. Launþegar og sjálfstæðir atvinnurekendur geta greitt allt að 4% af heildarlaunum sínum sem viðbótariðgjöld í séreignarsjóð. Í mörgum kjarasamningum hefur verið samið um að launagreiðendur greiði allt að 2% mótframlag gegn 2% framlagi launþega. Upplýsingar um hvaða mótframlagi þú átt rétt á, færðu hjá stéttarfélagi þínu.
Samningur um séreignarsjóð
Lífeyrissparnaður byggist á því að einstaklingar gera samning við séreignarsjóð eða fjármálafyrirtæki um að launagreiðandi skuli mánaðarlega draga allt að 4% af launum og greiða sem viðbótariðgjöld í séreignarsjóð. Sparnaðurinn er laus til úttektar frá 60 ára aldri. Rétthafar geta einnig tekið inneignina út á lengri tíma að eigin vali. Sparnaðurinn erfist við fráfall rétthafa.
Nýttu þér þennan frábæra sparnaðarkost
Til að hefja lífeyrissparnað þarftu að fylla út samning um lífeyrissparnað. Hér til hliðar í næstu skrefum er hægt að nálgast samningseyðublað.