Beint í leiðarkerfi

Skattalegt hagræði

Skattalegt hagræði lífeyrissparnaðar

Skattalegt hagræði lífeyrissparnaðar felst í því að ekki er greiddur fjármagnstekjuskattur af vaxtatekjum. Iðgjöld eru greidd óskattlögð í séreignarsjóð en útborganir eru hinsvegar skattlagðar eins og hverjar aðrar tekjur.

Í raun er tekjuskattinum frestað þar til inneign er tekin út en í sumum tilvikum lækkar tekjuskattur einnig. Það gerist ef einstaklingur á ónýttan persónuafslátt þegar inneign er tekin út eða jaðarskattar eru lægri við útborgun en þegar skattinum var frestað.  

Nýttu þér þennan frábæra sparnaðarkost

Til að hefja lífeyrissparnað þarftu að fylla út samning sem þú getur fyllt út á netinu eða sótt á pappír (.pdf skjal). Skila þarf samningnum til Almenna lífeyrissjóðsins eða Íslandsbanka.