Beint í leiðarkerfi

Um viðbótarlífeyrissparnað

Hagkvæmur sparnaður

  • Enginn upphafskostnaður, þú byrjar strax að spara
  • Mótframlag launagreiðanda allt að 2% af launum bætist við þitt framlag
  • Þægilegt - launagreiðandi sér um að greiða iðgjöldin
  • Hagstætt - enginn fjármagnstekjuskattur
  • Sparnaðurinn er séreign rétthafa sem erfist við fráfall
  • Hægt er að fylgjast daglega með inneigninni á Sjóðfélagavef sjóðsins
  • Þú getur byrjað að taka út úr sjóðnum við 60 ára aldur

Viðbótarlífeyrissparnaðinum má líkja við risastóran starfslokasamning sem þú gerir  við sjálfan þig því vegleg upphæð getur beðið þín við starfslok. Þér býðst að greiða 4% af launum sem viðbótariðgjald í lífeyrissparnað samhliða lögbundnum sparnaði. Til viðbótar fæst allt að 2% af launum sem mótframlag frá launagreiðanda (mismunandi eftir kjarasamningum).

Samningur um sparnað

Lífeyrissparnaður byggist á því að einstaklingar gera samning við Almenna lífeyrissjóðinn um að launagreiðandi skuli mánaðarlega draga allt að 4% af launum og greiða sem viðbótariðgjöld í séreignarsjóð. Sparnaðurinn er laus til úttektar frá 60 ára aldri og eru engar takmarkanir á úttektartíma. Sparnaðurinn erfist við fráfall rétthafa.

Nýttu þér þennan frábæra sparnaðarkost

Þú þarft að fylla út samning um lífeyrissparnað. Hér til hliðar í næsta skrefi er hægt að nálgast samningseyðublað.

Margir möguleikar og sveigjanleiki

Almenni lífeyrissjóðurinn býður sjóðfélögum að velja milli 7 ávöxtunarleiða eða Ævileiðina sem býður ávöxtun í aldurstengdum verðbréfasöfnum.