Beint í leiðarkerfi

Opnun viðbótarlífeyrissparnaðar


Í dag er í boði að fá fyrirframgreiðslu á viðbótarlífeyrissparnaði, að hámarki 6.250.000 kr., heimildin miðast við inneign við gildistöku laganna 1. janúar 2013. Mánaðarleg útborgun er 416.667 kr. og dreifist þar til að hámarksgreiðslu er náð.  Viðbótarlífeyrissparnaður er þegar sparað er 2 til 4% og vinnuveitandi greiðir 2% mótframlag. Séreign sem hefur myndast vegna skyldusparnaðar er ekki laus fyrr en við 60 ára aldur.


Fyrirframgreiðsla viðbótarlífeyrissparnaðar lækkar útgreiðslu við töku lífeyris og getur haft veruleg áhrif á lífsgæðin á eftirlaunaaldri.

Við hvetjum viðskiptavini okkar sem eru að spá í að sækja um fyrirframgreiðslu til að kynna sér þetta vel, ræða við ráðgjafa okkar og reikna dæmið til enda.

Reiknaðu dæmið til enda!

Lífeyrissparnaður er mjög hagstæður sparnaðarkostur þar sem hann er undanþeginn fjármagnstekjuskatti, margfaldar virði sitt yfir lengri tíma þrátt fyrir tímabundar sveiflur og leggur góðan grunn að góðu lífi á eftirlaunaaldri.

Ellilífeyrir er einungis 40 - 50 % af launum við starfslok og því er mikilvægt að sýna fyrirhyggju í sparnaði yfir starfsævina til þess að viðhalda sömu lífsgæðum eftir starfslok og eiga áhyggjulaust ævikvöld

 

Kostir:

  • Bætir tímabundið tekjumissi
  • Möguleiki að greiða inn á óhagstæð lán, t.d. yfirdráttarlán

Gallar:

  • Minni tekjur á eftirlaunaárum
  • Borgar fjármagnstekjuskatt ef þú ávaxtar peninginn annar staðar
  • Séreignarsparnaður er lögvarin eign við gjaldþrot

Til að sækja um þarf að fylla út umsóknareyðublað (pdf) og skila inn á skrifstofu sjóðsins að Borgartúni 25, senda á fax 510-2550 eða á netfangið almenni@almenni.is. Umsóknarfrestur er 19. hvers mánaðar og er í síðasta lagi hægt að sækja um í desember 2013.

Óski sjóðfélagar eftir útborgun er greitt út í byrjun hvers mánaðar og miðast inneignin við 1. janúar 2013 skv. reglugerðinni um opnun séreignarsparnaðar.