Reiknivélar á vefsíðu Almenna lífeyrissjóðsins eru til að hjálpa sjóðfélögum og lesendum að meta stöðu sína í lífeyris- og lánamálum. Reiknivélarnar byggja á einföldum reikniforsendum og almennum forsendum sem notendur slá inn og er niðurstaða útreikninga aðeins til viðmiðunar.
Almenni lífeyrissjóðurinn ber ekki ábyrgð á viðskiptum sem gerð eru eða öðrum ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli útreikninga í reiknivélunum.
Almenni lífeyrissjóðurinn ráðleggur lesendum að kynna sér málin eins vel og hægt er og fá ráðgjöf og upplýsingar frá fleiri en einum aðila áður en ákvarðanir eru teknar. Almenni lífeyrissjóðurinn bendir á að fjárfestingum og lántökum fylgir alltaf fjárhagsleg áhætta og ber m.a. að hafa í huga áhættu vegna breytilegs efnahagsumhverfis, alþjóðlegra fjárfestinga og gengisflökts gjaldmiðla.