Barnalífeyrir er greiddur með börnum og kjörbörnum öryrkja eða látins sjóðfélaga til 20 ára aldurs barns. Barnalífeyrir er greiddur ef sjóðfélaginn hafði greitt iðgjald í að minnsta kosti 24 mánuði síðustu 36 mánuðina fyrir andlát, notið elli- eða örorkulífeyris við andlátið eða öðlast rétt til framreiknings.
Ef sjóðfélagi hefur aftur greiðslur til sjóðsins eftir tímabundna fjarveru af vinnumarkaði vegna vinnu erlendis, náms, leyfis frá störfum, barneigna eða sambærilegra ástæðna öðlast hann aftur rétt til framreiknings sex mánuðum eftir að hann hefur aftur störf og greiðslu iðgjalds til lífeyrissjóðsins.
Veiti fráfall eða örorka sjóðfélagans börnunum jafnframt rétt til lífeyris úr öðrum lífeyrissjóði er barnalífeyrir úr Almenna lífeyrissjóðnum þá bundinn því skilyrði að sjóðfélaginn hafi síðast greitt iðgjöld til hans.