Það fer eftir aðstæðum hjá hverjum og einum hvað hentar í hvert skipti. Þegar sparað er til lengri tíma eru verðbréf besti kosturinn en rétt eignasamsetning og áhættudreifing eru lykilatriði. Með eignasamsetningu er átt við hversu hátt hlutfall er í skuldabréfum, hlutabréfum og erlendum verðbréfum.
Algengast er að ákveða eignasamsetninguna út frá aldri og er kenningin sú að eftir því sem sparnaðartíminn er lengri getur vægi hlutabréfa verið hærra. Hlutabréf gefa að jafnaði góða ávöxtun til langs tíma en ávöxtun þeirra getur verið sveiflukennd til skamms tíma.
Við uppbyggingu eigna borgar sig að byrja á bankareikningum og öruggustu verðbréfunum og mynda fyrst góðan varasjóð sem hægt er að losa með stuttum fyrirvara. Þegar varasjóðurinn er kominn á góðan rekspöl er óhætt að auka áhættuna með öðrum verðbréfum.
Ráðlegging okkar er að byggja upp sparnaðinn með markvissum hætti, setja markmið um eignasamsetningu og byggja upp eignir með reglulegum kaupum á sjóðum. Munið eftir kostnaðinum.