Sjóðfélagi á rétt á örorkulífeyri verði hann fyrir orkutapi sem metið er 50% eða meira, orðið vanhæfur til að gegna starfi sínu og geti sannað að um tekjuskerðingu sé að ræða af völdum orkutapsins.
Hann er greiddur út fyrirfram fyrsta virka dag í mánuði.
Örorkulífeyrir greiðist ekki fyrstu þrjá mánuði eftir orkutap. Til þess að eiga rétt á örorkulífeyri þarf sjóðfélagi sannanlega að hafa orðið fyrir tekjumissi. Ef sjúkrasjóður eða vinnuveitandi greiðir laun áfram eftir orkutap þá hefjast greiðslur örorkulífeyris þegar þær greiðslur stoppa.