Beint í leiðarkerfi

Sérfundir

Almenni lífeyrissjóðurinn býður sjóðfélögum að hitta ráðgjafa og fá upplýsingar um lífeyrisréttindi og/eða eignir. Við bjóðum sjóðfélögum að koma á stöðufund um lífeyrisréttindi eða á upplýsingafund til að fá upplýsingar um eignir. Fyrir neðan getur þú pantað fund á tíma sem hentar þér. Sjóðfélagar eru líka alltaf velkomnir á skrifstofu okkar ef þeir vilja hitta ráðgjafa eða fá upplýsingar.

Stöðufundur

Þekkir þú lífeyrisréttindin þín?

  • Veist þú hvaða tekjum þú mátt eiga von á í eftirlaun miðað við núverandi sparnað?
  • Hefur þú hugmynd um hvernig þú ert tryggð/ur við tekjumissi vegna veikinda eða slysa?
  • Hvaða bætur yrðu greiddar til þinna nánustu ef þú féllir óvænt frá?

Á stöðufundinum verður farið yfir réttindin þín og bent á leiðir til að bæta við eftirlaunin og verjast áföllum vegna örorku eða fráfalls. Hér gefst þér einnig tækifæri til að ræða við ráðgjafa og spyrja spurninga um lífeyrismál og starfsemi lífeyrissjóðsins

Þú færð ítarlegar upplýsingar um áunnin réttindi í sjóðnum, hvert stefnir miðað við óbreyttar forsendur og ábendingar um aðgerðir til að bæta stöðuna.

Upplýsingar um þig:

Með hvaða hætti viltu að við höfum samband?

 

Upplýsingafundur

Hvernig er sparnaðurinn þinn ávaxtaður

  • Veist þú hvernig lífeyriseign þín er samsett?
  • Hver er áhættan í eignasafni þínu?
  • Hver er kostnaðurinn?

Á upplýsingafundinum verður farið yfir inneign þína, eignasamsetningu og áhættu þeirra ávöxtunarleiðar sem þú notar. Hér gefst þér einnig tækifæri til að ræa við ráðgjafa og spyrja spurninga um ávöxtun og eignir.

Þú færð ítarlegar upplýsingar um inneign þína og ávöxtunarleiðir sjóðsins

Upplýsingar um þig:

Með hvaða hætti viltu að við höfum samband?