Áhættudreifing mikilvæg

20. maí 2020

Áhættudreifing mikilvæg

Ávöxtun í janúar og fram undir lok febrúar var góð í söfnum Almenna en í lok mánaðarins fór að gæta áhrifa frá heimsfaraldrinum COVID-19 og lækkuðu hlutabréfamarkaðir skarpt og náðu botni þann 23. mars. Verulegur viðsnúningur varð á erlendum mörkuðum í lok mars og hefur lækkunin gengið að hluta til tilbaka. Heimsvísitala MSCI hækkaði frá 23. mars til loka apríl um rúmlega 28% í USD.  Allar ávöxtunarleiðir Almenna lífeyrissjóðsins skiluðu ágætri ávöxtun við lok fyrsta ársþriðjungs. Ríkissafn langt hækkaði mest á tímabilinu eða um 4,5%.

Ávöxtun á innlendum skuldabréfamarkaði var góð á fyrsta ársþriðjungi ársins, einkum vegna lækkunar á ávöxtunarkröfu langra skuldabréfa. Innlendur skuldabréfamarkaður hefur því skilað góðum gengishagnaði sem bættist við ávöxtun skuldabréfanna. Vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára löng verðtryggð skuldabréf hækkaði um 7,4% og vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára löng óverðtryggð skuldabréf um 10,7%.

Heimsvísitala erlendra hlutabréfa MSCI lækkaði um 12,4% í USD á fyrsta ársþriðjungi en hækkaði um 5,9% í íslenskum krónum þar sem íslenska krónan veiktist um 20,9% gagnvart USD á tímabilinu. Innlendur hlutabréfamarkaður fór ekki varhluta af áhrifum COVID-19 og lækkaði um 8,2% á fyrsta ársþriðjungi.

  • Blönduð söfn, söfn sem fjárfesta í skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum, hækkuðu um 3,2% til 4,2%
  • Ríkissafn langt hækkaði um 4,5%
  • Ríkissafn stutt hækkaði um 2,9%
  • Húsnæðissafn hækkaði um 1,4%
  • Innlánasafn hækkaði um 0,9%

 

Upplýsingar um afkomu ávöxtunarleiða Almenna lífeyrissjóðsins:

Blönduð söfn Ávöxtun blandaðra ávöxtunarleiða, þ.e. Ævisafna I, II, III og samtryggingarsjóðs var frá 3,2% til 4,2%. Lækkun á ávöxtunarkröfu langra skuldabréfa með tilheyrandi gengishagnaði og veiking íslensku krónunnar hafði mest áhrif til hækkunar á gengi safnanna.
Ríkissafn langt Ríkissafn langt hækkaði um 4,5%. Lækkun á ávöxtunarkröfu langra verðtryggðra skuldabréfa með tilheyrandi gengishagnaði skýra að mestu ávöxtun safnsins.
Ríkissafn stutt Ríkissafn stutt hækkaði um 2,9%. Lækkun á ávöxtunarkröfu óverðtryggðra skuldabréfa skýrir að mestu ávöxtun safnsins.
Innlána-safn Innlánasafnið hækkaði um 0,9%. Safnið ávaxtar eignir sínar á bundnum innlánsreikningum og vega verðtryggð innlán um 94% af eignum safnsins.
Húsnæðis-safn Húsnæðissafnið hækkaði um 1,4%. Safnið ávaxtar eignir sínar að mestu í veðskuldabréfum, innlánum og í stuttum óverðtryggðum ríkisskuldabréfum.

Góð eignadreifing        

Ávöxtun verðbréfasafna ræðst af eignasamsetningu og ávöxtun einstakra verðbréfaflokka. Almenni lífeyrissjóðurinn leggur mikla áherslu á góða eignadreifingu til að draga úr heildaráhættu safnanna. Sjóðurinn birtir mánaðarlega upplýsingar um ávöxtunarleiðir þar sem meðal annars má lesa um eignasamsetningu. Smellið hér til að skoða upplýsingablöðin. Sjóðurinn birtir einnig ítarlegar upplýsingar um ávöxtun og sveiflur á heimasíðu, sjá nánar hér.

 

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.