Ársfundur 2013

05. apríl 2013

Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins árið 2013 verður haldinn þriðjudaginn 23. apríl 2013 á Grand Hótel Reykjavík kl. 17:15.
Dagskrá.

1. Skýrsla stjórnar.

2. Ársreikningur 2012 og tryggingafræðilega athugun á fjárhag samtryggingarsjóðs.

3. Kynning á fjárfestingarstefnu Almenna lífeyrissjóðsins.

4. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins.

5. Kosning stjórnar.

6. Kosning endurskoðenda eða endurskoðunarfélags.

7. Ákvörðun um laun stjórnar.

8. Önnur mál.

 

Vakin er athygli á því að framboðum til stjórnar (aðalmenn) skal skila viku fyrir ársfund sjóðsins. Framboðsfrestur til stjórnar rennur út þann 16. apríl 2013 kl. 24:00. Hægt er að senda inn framboð á netfangið almenni@almenni.is.
Á ársfundinum skal kjósa tvo aðalmenn og einn varamann í stjórn til þriggja ára. Á fundinum lýkur kjörtímabili eftirtalinna stjórnarmanna:

Aðalmenn:

Andrés Magnússon.

Oddur Ingimarsson.

Varamenn:

Gunnar Einarsson

 

Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.

Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.