Ársskýrsla 2017

16. mars 2018

Ársskýrsla 2017

Ársskýrsla Almenna lífeyrissjóðsins fyrir árið 2017 hefur verið birt. Ársskýrslan er samtals 94 blaðsíður en í henni er að finna ítarlegar upplýsingar um starfsemi sjóðsins, ársreikning 2017, útdrátt úr fjárfestingarstefnu og áhættustefnu. Skýrsluna má sjá með því að smella hér.

Helstu atriði í ársreikningi 2017 eru eftirfarandi:

  • Heildareignir 209 milljarðar
  • Greidd iðgjöld 12,6 milljarðar
  • Greiddur lífeyrir 4,7 milljarðar
  • Raunávöxtun samtryggingarsjóðs 7,4%. Síðustu 5 ár var raunávöxtunin 4,9% að jafnaði
  • Raunávöxtun séreignarsjóðs var á bilinu 1,9% til 7,9%
  • Tryggingafræðileg staða batnaði á milli ára og eru heildarskuldbindingar 2,6% umfram heildareignir.
  • Ný lán til sjóðfélaga jukust fjórða árið í röð en sjóðurinn veitti ný lán fyrir 10,8 milljarða. Á árinu voru greidd upp eldri lán fyrir 2,2 milljarða.

Nánar:

Almenni lífeyrissjóðurinn stækkaði um 24 milljarða eða 13% árinu og námu heildareignir hans 209 milljörðum króna í árslok 2017. Sjóðfélagar í árslok voru 44.274 og fjölgaði um 3,8% á milli ára. Eignir séreignarsjóðs voru 109 milljarðar en samtryggingarsjóðs 100 milljarðar.

Greidd iðgjöld til sjóðsins árið 2017 voru samtals 12,6 milljarðar sem er 14% hækkun frá árinu áður.

Töluverðar sveiflur voru í ávöxtun blandaðra safna Almenna innan ársins en yfir árið í heild skiluðu söfnin góðri raunávöxtun og skiluðu fjögur söfn yfir 7% raunávöxtun. Verðbólga hefur haldist lág undanfarin ár og hækkaði vísitala neysluverðs um 1,7% árið 2017.

  • Hæst var ávöxtunin í Ríkissafni löngu sem hækkaði um 9,8%
  • Blönduð söfn, sem fjárfesta í skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum, hækkuðu um 7,0% til 9,7%
  • Húsnæðissafn hækkaði um 5,3%
  • Ríkissafn stutt hækkaði um 5,0%
  • Innlánasafn hækkaði um 3,7%
  • Sjá nánar frétt um ávöxtun 2017 hér.

Lífeyrisgreiðslur samtryggingarsjóðs voru alls 1,8 milljarðar árið 2017 sem er 14,8% hækkun frá árinu áður. Heildar­fjöldi líf­eyrisþega var 1.687.

Lífeyrisgreiðslur séreignarsjóðs námu alls 3 milljörðum sem er 7,5% hækkun frá árinu áður. Á árinu var greiddur 1,1 milljarður inn á húsnæðislán vegna 2.932 sjóðfélaga og 36 milljónir vegna kaupa á fyrstu íbúð fyrir 74 sjóðfélaga samkvæmt úrræði ríkisstjórnarinnar sem heimilar sjóðfélögum að greiða inn á höfuðstól húsnæðislána á tímabilinu 1.7.2014 til 30.6.2019.

Tryggingafræðileg staða batnaði um 1,6 prósentustig á árinu vegna góðrar ávöxtunar, einkum á erlendum eignum, og lágrar verðbólgu. Tryggingafræðileg úttekt samtryggingarsjóðs miðað við 31. desember 2017 sýnir að áfallnar skuldbindingar eru 2,2% hærri en núvirtar eignir og heildarskuldbindingar (áfallnar skuldbindingar að viðbættum skuldbindingum vegna framtíðariðgjalda virkra sjóðfélaga) eru 2,6% umfram heildareignir sem samanstanda af núvirtum eignum og framtíðariðgjöldum. Samkvæmt úttektinni eru heildareignir samtryggingarsjóðs 160,4 milljarðar og heildarskuldbind­ingar 164,7 milljarðar.

Vegna breytts kynjahlutfalls og lengingar á meðalævi á síðustu árum leggur tryggingafræðingur sjóðsins til að stjórn samþykki nýja réttindatöflu fyrir greitt iðgjald til samtryggingarsjóðs samkvæmt heimild í grein 24 í samþykktum sjóðsins. Með þessari breytingu lækka framtíðarréttindi sjóðfélaga um 2,5% til 4,9%. Stjórn sjóðsins hefur samþykkt tillöguna og tekur ný réttindatafla gildi frá og með 1. apríl 2018. Hefði ný réttindatafla verið í gildi í árslok 2017 væru heildarskuldbindingar sjóðsins 0,9% umfram heildareignir.

Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins verður haldinn fimmtudaginn 22. mars 2018 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura kl. 17:15. Sjá nánar hér.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.