Endurskoðandi og endurskoðunarfélag

19. mars 2018

Endurskoðandi og endurskoðunarfélag

Samkvæmt grein 6.2 í samþykktum sjóðsins skal ársfundur kjósa endurskoðanda eða endurskoðunarfélag til að endurskoða ársreikning lífeyrissjóðsins. Í greininni kemur fram að tillögum um endurskoðunarfélag skuli skila viku fyrir ársfund. Samkvæmt tillögu endurskoðunarnefndar samþykkti stjórn Almenna lífeyrissjóðsins á fundi þann 28. febrúar sl. að leggja til að Ernst & Young ehf. verði endurskoðendur Almenna lífeyris­sjóðsins. Þar sem engin önnur tillaga hefur borist er Ernst & Young ehf. sjálfkjörið sem endurskoðunarfélag sjóðsins fyrir reikningsárið 2018.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.