Endurskoðunarfélag fyrir árið 2021

23. mars 2021

Endurskoðunarfélag fyrir árið 2021
Mynd: Anna Guðmundsdóttir

Samkvæmt grein 6.2 í samþykktum sjóðsins skal ársfundur kjósa endurskoðanda eða endurskoðunarfélag til að endurskoða ársreikning lífeyrissjóðsins. Í greininni kemur fram að tillögum um endurskoðunarfélag skuli skila viku fyrir ársfund. Samkvæmt tillögu endurskoðunarnefndar samþykkti stjórn Almenna lífeyrissjóðsins á fundi þann 10. mars sl. að leggja til að Ernst & Young ehf. verði endurskoðendur Almenna lífeyris­sjóðsins. Þar sem engin önnur tillaga hefur borist er Ernst & Young ehf. sjálfkjörið sem endurskoðunarfélag sjóðsins fyrir reikningsárið 2021.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.