Fínn fyrri helmingur

22. júlí 2019

Fínn fyrri helmingur
Mynd: Anna Guðmundsdóttir

Miklar hækkanir á hlutabréfamörkuðum á fyrri hluta ársins

Hlutabréf á innlendum og erlendum hlutabréfamörkuðum hækkuðu mikið á fyrri helmingi ársins. Ávöxtun á innlendum skuldabréfamarkaði var einnig góð, einkum vegna lækkunar á ávöxtunarkröfu langra skuldabréfa. Heildarvísitala aðallista hækkaði um 21,8% fyrstu sex mánuði ársins og Heimsvísitala erlendra hlutabréfa MSCI um 16,9% í USD. Íslenska krónan lækkaði gagnvart USD og veiktist um 7% á tímabilinu. Heimsvísitala erlendra hlutabréfa MSCI hækkaði því um 25,1% í íslenskum krónum á fyrri helmingi ársins.

Mikil lækkun var á ávöxtunarkröfu langra skuldabréfa á fyrri helmingi ársins sem þýðir að gengishagnaður bættist við ávöxtun skuldabréfanna. Vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára löng verðtryggð skuldabréf hækkaði um 8,4% og vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára löng óverðtryggð skuldabréf um 16,5%.

  • Ævisafn I skilaði hæstri ávöxtun á fyrri helmingi ársins og hækkaði um 13,9%, önnur blönduð söfn, söfn sem fjárfesta í skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum, hækkuðu um 6,5% til 11,6%
  • Ríkissafn langt hækkaði um 5,4%
  • Ríkissafn stutt hækkaði um 4,1%
  • Húsnæðissafn hækkaði um 2,9%
  • Innlánasafn hækkaði um 2,5%

Upplýsingar um afkomu ávöxtunarleiða Almenna lífeyrissjóðsins:

Blönduð söfn Ávöxtun blandaðra ávöxtunarleiða, þ.e. Ævisafna I, II, III og samtryggingarsjóðs var frá 6,5% til 13,9%. Hækkun á erlendum og innlendum hlutabréfamörkuðum hafði mest áhrif til hækkunar á gengi safnanna.
Ríkissafn langt  Ríkissafn langt hækkaði um 5,4%. Lækkun á ávöxtunarkröfu langra verðtryggðra skuldabréfa og hækkun á vísitölu neysluverðs skýra að mestu ávöxtun safnsins.
 Ríkissafn stutt  Ríkissafn stutt hækkaði um 4,1%. Lækkun á ávöxtunarkröfu óverðtryggðra skuldabréfa og væntingar um aukna verðbólgu hafa mest áhrif á ávöxtun safnsins.
 Innlána-safn  Innlánasafnið hækkaði um 2,5%. Safnið ávaxtar eignir sínar á bundnum innlánsreikningum og vega verðtryggð innlán um 93% af eignum safnsins.
 Húsnæðis-safn  Húsnæðissafnið hækkaði um 2,9%. Safnið ávaxtar eignir sínar að mestu í veðskuldabréfum, innlánum og í stuttum óverðtryggðum ríkisskuldabréfum.

Góð eignadreifing        

Ávöxtun verðbréfasafna ræðst af eignasamsetningu og ávöxtun einstakra verðbréfaflokka. Almenni lífeyrissjóðurinn leggur mikla áherslu á góða eignadreifingu til að draga úr heildaráhættu safnanna. Sjóðurinn birtir mánaðarlega upplýsingar um ávöxtunarleiðir þar sem meðal annars má lesa um eignasamsetningu. Smellið hér til að skoða upplýsingablöðin. Sjóðurinn birtir einnig ítarlegar upplýsingar um ávöxtun og sveiflur á heimasíðu, sjá nánar hér.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.