Fjörugur fyrsti fjórðungur

15. apríl 2019

Fjörugur fyrsti fjórðungur
Mynd: Anna Guðmundsdóttir

Árið hefur farið vel af stað og skörp lækkun á gengi blandaðra safna í desember 2018 hafði að mestu gengið til baka um miðjan janúar 2019. Heildarvísitala aðallista hefur hækkað um 13,2% á fyrsta ársfjórðungi og skýrir mikil hækkun á Marel þá hækkun að miklu leyti. Heimsvísitala erlendra hlutabréfa MSCI tók vel við sér í upphafi árs og hefur hækkað um 12,5% í USD á fyrsta ársfjórðungi. Íslenska krónan hefur gefið eftir gagnvart USD og veikst um 5,4% á fyrstu þremur mánuðum ársins. Heimsvísitala erlendra hlutabréfa MSCI hefur því hækkað um 18,5% í íslenskum krónum á fyrsta ársfjórðungi.

Rólegt var á innlendum skuldabréfamarkaði fyrstu vikur ársins en í mars dróg til tíðinda og lækkaði ávöxtunarkrafa langra skuldabréfa verulega sem þýðir að gengishagnaður bætist við ávöxtun skuldabréfanna. Vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára löng verðtryggð skuldabréf hækkaði um 4,3% á fyrsta ársfjórðungi og vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára löng óverðtryggð skuldabréf um 9,4%.

  • Ævisafn I skilaði hæstri ávöxtun á fyrsta ársfjórðungi og hækkaði um 9,3%, önnur blönduð söfn, söfn sem fjárfesta í skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum, hækkuðu um 3,8% til 7,4%
  • Ríkissafn langt hækkaði um 2,6%
  • Ríkissafn stutt hækkaði um 1,9%
  • Húsnæðissafn hækkaði um 1,3%
  • Innlánasafn hækkaði um 1,0%

Upplýsingar um afkomu ávöxtunarleiða Almenna lífeyrissjóðsins:

Blönduð söfn Ávöxtun blandaðra ávöxtunarleiða, þ.e. Ævisafna I, II, III og samtryggingarsjóðs var frá 3,8% til 9,3%. Hækkun á erlendum og innlendum hlutabréfamörkuðum hafði mest áhrif til hækkunar á gengi safnanna.
Ríkissafn langt Ríkissafn langt hækkaði um 2,6%. Ávöxtun langra verðtryggðra skuldabréfa og hækkun á vísitölu neysluverðs skýra að mestu ávöxtun safnsins.
Ríkissafn stutt Ríkissafn stutt hækkaði um 1,9%. Lágt vaxtaumhverfi og væntingar um verðbólgu hafa mest áhrif á ávöxtun safnsins.
Innlána-safn Innlánasafnið hækkaði um 1,0%. Safnið ávaxtar eignir sínar á bundnum innlánsreikningum og vega verðtryggð innlán um 93% af eignum safnsins.
Húsnæðis-safn Húsnæðissafnið hækkaði um 1,3%. Safnið ávaxtar eignir sínar að mestu í veðskuldabréfum, innlánum og í stuttum óverðtryggðum ríkisskuldabréfum.

 Góð eignadreifing        

Ávöxtun verðbréfasafna ræðst af eignasamsetningu og ávöxtun einstakra verðbréfaflokka. Almenni lífeyrissjóðurinn leggur mikla áherslu á góða eignadreifingu til að draga úr heildaráhættu safnanna. Sjóðurinn birtir mánaðarlega upplýsingar um ávöxtunarleiðir þar sem meðal annars má lesa um eignasamsetningu. Smellið hér til að skoða upplýsingablöðin. Sjóðurinn birtir einnig ítarlegar upplýsingar um ávöxtun og sveiflur á heimasíðu, sjá nánar hér.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.