Sjálfkjörið í aðalstjórn

16. mars 2018

Sjálfkjörið í aðalstjórn

Varamaður kosinn á ársfundi

Tvö framboð bárust í tvö laus sæti í aðalstjórn Almenna lífeyrissjóðsins á ársfundi sjóðsins en framboðsfrestur rann út á miðnætti 15. mars 2018. Samkvæmt samþykktum skulu sitja jafnmargar konur og karlar í stjórn og að þessu sinni gátu eingöngu konur gefið kost á sér. Framboð barst frá Örnu Guðmundsdóttir, lækni og formanni Læknafélags Reykjavíkur og Huldu Rós Rúriksdóttur, hæstaréttarlögmanni. Arna og Hulda Rós eru því sjálfkjörnar í aðalstjórn sjóðsins til þriggja ára.

Ársfundur sjóðsins verður haldinn verður 22. mars nk. Á fundinum verður kosið um einn varamann sem má vera af hvoru kyni.Varamenn þurfa ekki að tilkynna framboð fyrr en á ársfundi og verður þeim gefinn kostur á því að kynna sig á fundinum.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.