Skattþrep og skattleysismörk hækka

03. janúar 2013

Ríkisskattstjóri hefur birt upplýsingar á vef sínum um skattheimtu einstaklinga, ný skattþrep og nýjar staðgreiðsluprósentur. Frá 1. janúar 2013 taka eftirfarandi skattþrep gildi.

Skattþrep Viðmiðunartekjur á mánuði Staðgreiðsluprósenta
1. þrep 0 – 241.475 krónur 37,32%
2. þrep 241.476-739.509 krónur 40,22%
3. þrep Yfir 739.509 krónur 46,22%

Persónuafsláttur verður 48.485 krónur á mánuði og eru skattleysismörk á mánuði því 129.917 krónur.

Tekjuskattur er greiddur af öllum lífeyrisgreiðslum.

  • Við útreikning á staðgreiðslu er horft til tekna í þeim mánuði sem lífeyrir er greiddur og því getur borgað sig að dreifa greiðslum á lengra tímabil.
  • Staðgreiðslan er reiknuð þannig að greiddur er 37,32% skattur af fyrstu 241.475 krónum, 40,22% skattur af næstu 498.034 krónum og 46,22% af öllum tekjum sem eru umfram kr. 739.509 krónum.
  • Ekki er horft til heildartekna á árinu fyrr en við álagningu tekjuskatts í ágúst á hverju ári.

Það er á ábyrgð lífeyrisþega að tilkynna lífeyrissjóðnum um skattþrep sem á að nota. Álagning tekjuskatts fer fram 1. ágúst ár hvert og ef það vantar upp á staðgreiðsluna bætist við 2,5% álag. Við viljum því hvetja sjóðfélaga sem vilja fá upplýsingar um hvernig best er að haga úttekt lífeyris að hafa samband við ráðgjafa sjóðsins.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.