Sveiflur á mörkuðum

07. maí 2018

Sveiflur á mörkuðum

10% hækkun í upphafi árs gekk til baka

Miklar sveiflur hafa verið erlendum hlutabréfamörkuðum á fyrstu mánuðum ársins og hefur heimsvísitala hlutabréfa MSCI lækkað um 0,2% frá áramótum til loka apríl. Erlendir hlutabréfamarkaðir fóru hressilega af stað í byrjun ársins og hækkuðu um nálægt 10% á fyrstu þremur vikum ársins en sú hækkun gekk síðan tilbaka. Íslenska krónan hefur styrkst um 3,2% gagnvart USD og hefur því heimsvísitalan lækkað um 3,4% í íslenskum krónum. Innlend hlutabréf hafa skilað bestri ávöxtun það sem af er ári og hefur heildarvísitala aðallista hækkað um 7,6% á fyrsta ársþriðjungi. Ávöxtunarkrafa langra verðtryggðra skuldabréfa hefur hækkað lítillega sem þýðir gengistap fyrir löng verðtryggð skuldabréf. Vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára löng verðtryggð skuldabréf hefur hækkað um 0,9% til loka apríl. Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,3% fyrstu fjóra mánuði ársins.

  • Innlánasafnið hækkaði mest á fyrsta ársþriðjungi eða um 1,9%
  • Ávöxtun blandaðra safna, söfn sem fjárfesta í skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum, var frá -0,3% til 1,2%
  • Húsnæðissafn hækkaði um 1,8%
  • Ríkissafn langt hækkaði um 1,3%
  • Ríkissafn stutt hækkaði um 1,1%

Upplýsingar um afkomu ávöxtunarleiða Almenna lífeyrissjóðsins:

Blönduð söfn Ávöxtun blandaðra ávöxtunarleiða, þ.e. Ævisafna I, II, III og samtryggingarsjóðs var frá        -0,3% til 1,2%. Mikil styrking krónunnar og lækkun á erlendum hlutabréfum hafði áhrif til lækkunar á gengi safnanna en hækkun á innlendum hlutabréfum og verðtryggðum löngum skuldabréfum vóg á móti.
Ríkissafn langt Ríkissafn langt hækkaði um 1,3%. Ávöxtun langra verðtryggðra skuldabréfa og hækkun á vísitölu neysluverðs skýra að mestu ávöxtun safnsins.
Ríkissafn stutt Ríkissafn stutt hækkaði um 1,1%. Lágt vaxtaumhverfi og væntingar um verðbólgu hafa mest áhrif á ávöxtun safnsins.
Innlána-safn Innlánasafnið hækkaði um 1,9%. Safnið ávaxtar eignir sínar á bundnum innlánsreikningum og vega verðtryggð innlán tæp 94% af eignum safnsins.
Húsnæðis-safn Húsnæðissafnið hækkaði um 1,8%. Safnið ávaxtar eignir sínar að mestu í veðskuldabréfum, innlánum og í stuttum óverðtryggðum ríkisskuldabréfum.

 
Góð eignadreifing        
 

Ávöxtun verðbréfasafna ræðst af eignasamsetningu og ávöxtun einstakra verðbréfaflokka. Almenni lífeyrissjóðurinn leggur mikla áherslu á góða eignadreifingu til að draga úr heildaráhættu safnanna. Sjóðurinn birtir mánaðarlega upplýsingar um ávöxtunarleiðir þar sem meðal annars má lesa um eignasamsetningu. Smellið hér til að skoða upplýsingablöðin. Sjóðurinn birtir einnig ítarlegar upplýsingar um ávöxtun og sveiflur á heimasíðu, sjá nánar hér.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.