Fyrsta íbúð

Einstaklingar sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð geta greitt viðbótarlífeyrissparnað óskattlagðan upp í útborgun á íbúð eða inn á húsnæðislán.

  • Hámarksfjárhæð á ári sem má leggja fyrir í þessum tilgangi er 500.000 krónur á einstakling eða 41.667 á mánuði.
  • Til að fullnýta heimildina þarf einstaklingur að hafa laun upp á 694.000 krónur.
  • Hámarkssparnaður er 4% af launum frá launþega og 2% frá launagreiðanda. Einstaklingur spari a.m.k. til jafns við framlag launagreiðanda.
  • Skilyrði er að einstaklingur hafi ekki áður átt íbúð og að hann afli sér íbúðarhúsnæðis annað hvort einn eða í félagi við annan einstakling.
  • Einstaklingur þarf að eiga a.m.k. 30% í íbúð.
  • Þegar kemur að því að nýta sér heimildina er hægt að finna frekari upplýsingar á www.leidretting.is en sótt er um á vefsíðu ríkisskattstjóra www.rsk.is
  • Þrátt fyrir að lögin um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð hafi tekið gildi 1. júlí 2017 er einstaklingum sem eiga ekki íbúð og skulda ekki húsnæðislán heimilt að greiða viðbótarlífeyris­sparnað sem hefur safnast frá 1. júlí 2014 til kaupa á íbúð til eigin nota.

Húsnæðissparnaður

Einstaklingum sem eiga ekki íbúð og skulda ekki húsnæðislán er heimilt að nota viðbótarlífeyris­sparnað sem hefur safnast frá 1. júlí 2014 með sömu skilyrðum og gilda um séreign inn á lán til kaupa á íbúð til eigin nota.

  • Hægt að kaupa íbúðarhúsnæði til 31. desember 2024, vegna iðgjalda á tímabilinu 1. júlí 2014 til 31. desember 2024, án þess að skattaafsláttur falli niður.
  • Skilyrði er að einstaklingur hafi ekki átt fasteign 1. júlí 2014 og fram að þeim tíma þegar hann sækir um ráðstafa séreignarsparnaðinum inn á húsnæðislán.
  • Húsnæðið þarf að vera til eigin nota (ekki er gerð krafa um fyrstu íbúðarkaup).
  • Húsnæðissafn Almenna er ávöxtunarleið sem hentar sérstaklega vel fyrir þá sem vilja spara fyrir útborgun í fyrstu fasteign. Smelltu hér til að kynna þér Húsnæðissafnið.

Séreign inn á lán

Einstaklingar geta greitt viðbótarlífeyrissparnað með skattaafslætti inn á höfuðstól húsnæðislána út árið 2024.

  • Heimilt er að greiða allt að 4% framlag launþega og 2% framlag launagreiðanda, hámark 500.000 krónur á ári fyrir einstakling en 750.000 krónur á ári fyrir hjón eða aðra sem uppfylla skilyrði til samsköttunar.
  • Framlag launagreiðanda má ekki vera hærra en 167.000 krónur á ári fyrir einstaklinga en 250.000 fyrir hjón.
  • Óheimilt er að greiða eingöngu framlag frá launa­greiðanda inn á lán.
  • Skilyrði er að lán sé tekið til öflunar eigin húsnæðis, tryggð með veði og að vaxtagjöld séu grundvöllur til vaxtabóta (lán á reit 5.2 í skattframtali).
  • Hægt er að sækja um að greiða séreign inn á lán á www.leidretting.is

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.