Almenni-Lífsverk hefur starfsemi
30. desember 2025
Almenni – Lífsverk, sameinaður lífeyrissjóður Lífsverks lífeyrissjóðs og Almenna lífeyrissjóðsins, hefur formlega starfsemi þann 1. janúar 2026. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur staðfest breytingar á samþykktum Lífsverks lífeyrissjóðs og Almenna lífeyrissjóðsins vegna tillaga um sameiningu sjóðanna. Athugun Samkeppniseftirlitsins á áhrifum samrunans stendur yfir en eftirlitið hefur veitt undanþágu sem heimilar samrunanum að koma til framkvæmda samkvæmt samþykktum.
Undirbúningur vegna samrunans stendur yfir en búast má við að sameiningarverkefni standi yfir á fyrri hluta árs 2026. Vegna þess hefur verið opnuð sérstök síða með fréttum og ýmsum upplýsingum um framvindu sameiningar og öðrum atriðum sem skipta máli fyrir sjóðfélaga: Sameining Lífsverks og Almenna
Lífeyrisgreiðslur í janúar
Almenni – Lífsverk greiðir lífeyri í byrjun janúar (fyrirfram) í samræmi við samþykktir. Sjóðfélagar Lífsverks, sem áður fengu greiddan lífeyri í lok mánaðar, munu því fá lífeyri greiddan í lok desember og svo aftur í byrjun janúar. Framvegis verður lífeyrir hvers mánaðar greiddur fyrirfram eða í byrjun mánaðar.
Kynningarfundur í janúar
Almenni – Lífsverk býður sjóðfélögum á kynningarfund um sameininguna þriðjudaginn 27. janúar á Hilton Nordica, kl. 17:00. Á fundinum verður sérstök kynning á ávöxtunarleiðum séreignarsjóðs og farið yfir flutt og framtíðarréttindi í sameinuðum samtryggingarsjóði. Fundinum verður jafnframt streymt á heimasíðu sjóðsins og upptaka frá honum mun lifa áfram. Nánari upplýsingar um fundinn verða birtar síðar.
Fundir með ráðgjafa
Sjóðfélögum sem vilja nánari upplýsingar er bent á að þeir eru velkomnir á skrifstofu sjóðsins til að hitta ráðgjafa. Mælt er með að fólk panti tíma með því að smella hér