Getum við aðstoðað?

Skattþrep árið 2026

29. desember 2025

Skattþrep árið 2026

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt upplýsingar um skattþrep og skattaprósentur fyrir árið 2026. Sjá frétt þeirra hér.

Persónuafsláttur og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga hækka í upphafi hvers árs sem nemur hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði að viðbættri hækkun vegna framleiðnivaxtar í samræmi við lög.

Tekjuskattsprósentan er óbreytt frá fyrra ári sem og hámarksútsvar sveitarfélaga. Vegið meðal útsvar hækkar um 0,01 prósentustig fyrir tekjuárið 2025 og verður 14,94%.

Persónuafsláttur á árinu 2026 hækkar í 869.898 krónur á ári (úr 824.288 krónum)  eða 72.492 krónur á mánuði og eru skattleysismörk launatekna á mánuði því kr. 239.798 krónur. Skattleysismörk lífeyristekna eru hins vegar 230.206.

Skattþrep Viðmiðunartekjur á mánuði Staðgreiðsluprósenta
1. þrep 0 – 498.122 krónur 31,49%
2. þrep 498.123 – 1.398.450 37,99%
3. þrep Yfir 1.398.450 krónum 46,29%

Tekjuskattur er greiddur af öllum lífeyrisgreiðslum.

Við útreikning á staðgreiðslu er horft til tekna í þeim mánuði sem lífeyrir er greiddur og því getur borgað sig að dreifa á lengra tímabil. Þetta er gott að hafa í huga við ákvörðun um úttekt séreignar.

Staðgreiðslan er reiknuð þannig að greiddur er 31,49% skattur af fyrstu 498.122 krónum, 37,99% af næstu 900.328 og 46,29% af öllum tekjum sem eru umfram 1.398.450 krónur.

Ekki er horft til heildartekna á árinu fyrr en við álagningu tekjuskatts í júní árið eftir. Það er á ábyrgð lífeyrisþega að tilkynna lífeyrissjóðnum um skattþrep sem á að nota. Álagning tekjuskatts fer fram 1. júní ár hvert og ef það vantar upp á staðgreiðsluna bætist við 2,5% álag. Við viljum því hvetja sjóðfélaga sem vilja fá upplýsingar um hvernig best er að haga úttekt lífeyris að hafa samband við ráðgjafa sjóðsins.

Nánari upplýsingar um er að finna á vef Skattsins www.skatturinn.is