Iðgjaldaskil

Launagreiðendur geta skilað iðgjöldum á nokkra vegu til sjóðsins.

  • Við mælum með því að launagreiðendur nýti sér rafræn skil, annað hvort með því að senda skilagreinar beint úr launakerfinu eða með því að skrá skilagreinar í gegnum launagreiðendavefinn.
  • Með því að skila á rafrænan hátt beint úr launakerfinu eykst öryggi í gagnasendingum og villuhætta minnkar.
  • Lífeyrissjóðsnúmer Almenna fyrir lágmarksiðgjöld er L005.
  • Lífeyrissjóðsnúmer Almenna fyrir viðbótariðgjöld X004.
  • Lífeyrissjóðsnúmer Almenna fyrir iðgjöld í endurhæfingarsjóð er R005

Skil úr launakerfi

  • Einfaldast er að senda skilagreinaskrá rafrænt til sjóðsins beint í gegnum launakerfið (XML-skil). Ef launagreiðendur óska eftir því að greiðsluseðill myndist í heimabanka þarf að hafa samband við sjóðinn og óska eftir því. Ekki þarf lykilorð til að senda Almenna XML-skilagrein, ef launakerfi óska eftir lykilorði verður launafulltrúi að búa það til.
  • Í flestum launaforritum er verkliður sem útbýr skilagreinaskrá (TXT-skrá) sem hægt er að senda með tölvupósti til sjóðsins á netfangið skilagreinar@almenni.is

Launagreiðendavefur

Á launagreiðendavef geta launagreiðendur sótt upplýsingar um iðgjaldagreiðslur til sjóðsins og skráð skilagreinar.

  • Launagreiðendavefur er góð leið til að skrá og senda skilagreinar til sjóðsins.  Til stytta sér leið er hægt að yfirskrifa eldri skilagrein og breyta fjárhæðum og tímabili.
  • Innskráning á vefinn er með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.
  • Á launagreiðendavefnum eru upplýsingar um greiðslustöðu launagreiðanda á hverjum tíma.
  • Launagreiðendur geta sótt yfirlit um iðgjaldagreiðslur fyrir valið greiðslu- og launatímabil.
  • Launagreiðendur geta gefið endurskoðendum eða öðrum þeim sem sjá um launamál fyrirtækisins umboð að launagreiðendavefnum. Smelltu hér til að skoða leiðbeiningar um umboð.

 

Rafrænar skilagreinar

Hægt er að fylla út rafræna skilagrein á opna vefnum okkar með því að smella hér.

Launagreiðendur geta einnig sent útfylltar skilagreinar með tölvupósti á netfangið skilagreinar@almenni.is,
með faxi í númer 510 2550 eða í bréfapósti til Almenni lífeyrissjóðurinn, Borgartúni 25, 105 Reykjavík.

Greiðsluupplýsingar

Upplýsingar vegna greiðslu iðgjalda til Almenna lífeyrissjóðsins:

  • Greiða kröfu sem myndast í netbanka.
  • Greiða beint inn á bankareikning sjóðsins, 513-26-410000, kt. 450290-2549.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.