Hvenær get ég byrjað á lífeyri?
15. september 2017
Sjóðfélagar geta hafið töku ellilífeyris úr samtryggingarsjóði á aldrinum 60 til 80 ára. Viðmiðunaraldur ellilífeyris er 70 ár og lækkar lífeyrir ef taka lífeyris hefst fyrr. Á sama hátt hækkar lífeyrir ef töku lífeyris er frestað fram yfir 70 ár.
Inneign í séreignarsjóði er laus til útborgunar við 60 ára aldur.