Hver er munurinn á jöfnum greiðslum og jöfnum afborgunum?

27. september 2017

Ef lán eru með jöfnum afborgunum er höfuðstólnum dreift jafnt á fjölda afborgana og vextir bætast síðan við afborganir. Greiðslur lækka þá þegar líður á lánstímann því vextir lækka þegar höfuð­stóllinn greiðist niður.

Ef lán er með jöfnum greiðslum greiðir lántakandinn alltaf sömu upphæð á hverjum gjalddaga (ef vextir eru fastir og lán óverð­tryggð) en greiðir hinsvegar mismunandi hlutfall vaxta og höfuð­stóls. Til að byrja með er hlutfall vaxta mjög hátt en smátt og smátt eykst hlutfall höfuðstóls eftir því sem líður á lánstímann.

Kostir lána með jöfnum afborgunum er að þau greiðast hraðar niður en lán með jöfnum greiðslum en á móti kemur að greiðslubyrðin er mun þyngri framan af lánstímanum. Kostir lána með jöfnum greiðsl­um er að greiðslubyrðin helst stöðug yfir lánstímann ef vextir eru fastir eða sveiflast lítið en hins vegar greiðist höfuðstóllinn hægar niður í samanburði við lán með jöfnum afborgunum.

Lánareglur sjóðsins má lesa hér.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.