Hagkvæmasti sparnaðurinn

Viðbótarlífeyrissparnaður er hagkvæmasti sparnaðurinn sem völ er á, hvort sem ætlunin er að safna til eftirlaunaáranna eða inn á fyrstu fasteign.

  • Þú getur safnað allt að 6% af launum til viðbótar við skyldusparnað og tekið út þegar þú ert 60 ára eða safnað fyrir fyrstu fasteign.
  • Mótframlag launagreiðenda gerir það að verkum að þetta er ígildi 2% launahækkunar að vera með viðbótarlífeyrissparnað.
  • Engir fjármagnstekjuskattar eru greiddir af viðbótarlífeyrissparnaði frekar en öðrum séreignarsparnaði.
  • Viðbótarlífeyrissparnaður er ekki aðfararhæfur við gjaldþrot.
  • Hægt er að safna skattfrjálst í allt að 10 ár fyrir útborgun eða inn á höfuðstól fyrstu fasteignar. Húsnæðissafn Almenna hentar vel fyrir þann sparnað.

Byrjaðu núna með rafrænum skilríkjum eða fylltu út pdf skjal.

 

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.