Framboðsfrestur til stjórnar rennur út 16. mars

10. mars 2017

Framboðsfrestur til stjórnar rennur út 16. mars

Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins verður haldinn fimmtudaginn 23. mars næstkomandi, sjá nánar hér.

Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal skila framboðum til aðalstjórnar ekki síðar en viku fyrr eða nánar tiltekið kl. 24:00 fimmtudaginn 16. mars. Hægt er að senda inn framboð á netfangið almenni@almenni.is.

Samkvæmt samþykktum skal stjórn sjóðsins skipuð þremur konum og þremur körlum. Kjörtímabili stjórnarmanna Ólafs Jónssonar og Sigríðar Sigurðardóttur rennur út í ár og því skal kjósa aðalstjórnarmenn af sitt hvoru kyninu. Að auki skal kjósa eina konu í varastjórn þar sem tveir karlar eru fyrir í varastjórn.

 

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.