Séreign inn á lán framlengd til ársloka 2024

14. desember 2022

Séreign inn á lán framlengd til ársloka 2024
Mynd: Halldór Bachmann

Í tengslum við nýgerða kjarasamninga á almennum vinnumarkaði kynnti ríkisstjórnin nokkrar aðgerðir til að styðja við markmið samninganna. Ein af þessum aðgerðum er  framlenging á almennri heimild til skattfrjálsrar nýtingar séreignarsparnaðar til kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota eða ráðstöfunar inn á höfuðstól til ársloka 2024. Nánari upplýsingar, m.a. um nýtingu og framlengingu hjá þeim sem þegar nýta sér úrræðið, verða veittar síðar.

Sótt er um nýtingu séreignarsparnaðar inn á lán á vefsíðunni www.leidretting.is.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.