Áfram góð ávöxtun

28. október 2021

Áfram góð ávöxtun

Miklar hækkanir á innlendum hlutabréfamarkaði

Allar ávöxtunarleiðir Almenna lífeyrissjóðsins skiluðu jákvæðri ávöxtun fyrstu níu mánuði ársins. Ávöxtun blandaðra safna hefur verið góð og hækkaði Ævisafn I mest á tímabilinu eða um 13,6%. Miklar hækkanir hafa verið bæði á innlendum og erlendum hlutabréfamörkuðum fyrstu níu mánuði ársins. Einnig hefur verið góð ávöxtun á verðtryggðum löngum skuldabréfum.

Heimsvísitala erlendra hlutabréfa MSCI hækkaði um 13% í USD fyrstu þrjá ársfjórðunga ársins og um 15,8% í íslenskum krónum þar sem íslenska krónan hefur veikst gagnvart USD á tímabilinu. Innlend hlutabréf hafa hækkað hressilega síðustu þrjú ár og hefur heildarvísitala aðallista hækkað um 33,4% fyrstu níu mánuði ársins. Vísitalan hefur hækkað um 114,6% frá árslokum 2018 til loka september 2021 eða um 32% að meðaltali á ársgrundvelli.

Ávöxtunarkrafa langra verðtryggðra skuldabréfa hefur lækkað á fyrstu níu mánuðum ársins sem leiðir til gengishagnaðar fyrir löng verðtryggð skuldabréf. Vísitala neysluverðs hækkaði um 3,4% á tímabilinu sem skilar í hækkun á verðtryggðum löngum skuldabréfum. Vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára löng verðtryggð skuldabréf hækkaði um 7,2% fyrstu níu mánuði ársins. Ávöxtunarkrafa langra óverðtryggðra skuldabréf hækkaði á tímabilinu sem þýðir að skuldabréf lækka í verði og lækkaði vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára löng óverðtryggð skuldabréf um 2,2%.

  • Blönduð söfn, söfn sem fjárfesta í skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum, hækkuðu um 6,8% til 13,6%
  • Ríkissafn langt hækkaði um 5%
  • Ríkissafn stutt hækkaði um 0,2%
  • Húsnæðissafn hækkaði um 3,6%
  • Innlánasafn hækkaði um 3,3%

Upplýsingar um afkomu ávöxtunarleiða Almenna lífeyrissjóðsins:

Blönduð söfn Ávöxtun blandaðra ávöxtunarleiða, þ.e. Ævisafna I, II, III og samtryggingarsjóðs var frá        6,8% til 13,6%. Hækkanir á innlendum og erlendum hlutabréfamörkuðum höfðu mest áhrif til hækkunar á gengi safnanna.
Ríkissafn langt Ríkissafn langt hækkaði um 5%. Lækkun á ávöxtunarkröfu langra verðtryggðra skuldabréfa og hækkun á vísitölu neysluverðs skýrir að mestu ávöxtun safnsins.
Ríkissafn stutt Ríkissafn stutt hækkaði um 0,2%. Hækkun á ávöxtunarkröfu óverðtryggðra skuldabréfa skýrir að mestu litlar breytingar á gengi safnsins.
Innlána-safn Innlánasafnið hækkaði um 3,3%. Safnið ávaxtar eignir sínar á bundnum innlánsreikningum og vega verðtryggð innlán um 95% af eignum safnsins.
Húsnæðis-safn Húsnæðissafnið hækkaði um 3,6%. Safnið ávaxtar eignir sínar að mestu í veðskuldabréfum, innlánum og í stuttum óverðtryggðum ríkisskuldabréfum.

 Góð eignadreifing        

Ávöxtun verðbréfasafna ræðst af eignasamsetningu og ávöxtun einstakra verðbréfaflokka. Almenni lífeyrissjóðurinn leggur mikla áherslu á góða eignadreifingu til að draga úr heildaráhættu safnanna. Sjóðurinn birtir mánaðarlega upplýsingar um ávöxtunarleiðir þar sem meðal annars má lesa um eignasamsetningu. Smellið hér til að skoða upplýsingablöðin. Sjóðurinn birtir einnig ítarlegar upplýsingar um ávöxtun og sveiflur á heimasíðu, sjá nánar hér.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.