Áfram veginn

17. nóvember 2017

Áfram veginn
Mynd: Anna Guðmundsdóttir

Ávöxtun í lok þriðja ársfjórðungs

Á þriðja ársfjórðungi 2017 var áframhaldandi hækkun á heimsvísitölu hlutabréfa, bæði mælt í USD og í íslenskum krónum. Áframhaldandi hækkun var jafnframt á vísitölu langra verðtryggða skuldabréfa, vegna lækkunar á ávöxtunarkröfu á markaði.  Sá eignaflokkur sem lækkaði á þriðja ársfjórðungi var innlend hlutabréf og lækkaði heildarvísitala Kauphallarinnar á tímabilinu.

Frá áramótum til loka september 2017 hefur heildarvísitala Kauphallarinnar fyrir innlend hlutabréf hinsvegar hækkað um 5,9%, ávöxtunarkrafa langra verðtryggðra skuldabréfa hefur lækkað verulega með tilheyrandi gengishagnaði og hefur vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára löng verðtryggð skuldabréf hækkað um 7,4%.  Heimsvísitala hlutabréfa MSCI hækkaði um 15,9% í USD á árinu en vegna styrkingar krónunnar gagnvart USD þá hækkaði hún um 8,6% í íslenskum krónum á fyrstu níu mánuðum ársins.

Töluverðar sveiflur í ávöxtun á árinu hafa einkennt ávöxtun blandaðra safna Almenna en yfir tímabilið í heild hafa söfnin gefið ágæta ávöxtun.  Lág verðbólga einkennir jafnframt tímabilið en vísitala neysluverðs hækkaði um 1,3% á fyrstu 9 mánuðum ársins 2017.

  • Hæst var ávöxtunin í Ríkissafni löngu sem hækkaði um 6,4%
  • Blönduð söfn, sem fjárfesta í skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum, hækkuðu um 4,5%-5,9%
  • Ríkissafn stutt hækkaði um 3,4%
  • Húsnæðissafn hækkaði um 3,2%
  • Innlánasafn hækkaði um 2,7%

Upplýsingar um afkomu ávöxtunarleiða Almenna lífeyrissjóðsins:

Blönduð söfn        Blandaðar ávöxtunarleiðir, þ.e. Ævisafn I, II, III og samtryggingarsjóður hækkuðu fyrstu níu mánuði ársins um 4,5% til 5,9%. Lækkun ávöxtunarkröfu á löngum verðtryggðum skuldabréfum vóg þyngst í hækkun safnanna á árinu. Raunávöxtun blandaðra safna var á bilinu 3,2% til 4,5%.
Ríkissafn langt Ríkissafn langt hækkaði um 6,4% fyrstu níu mánuði ársins sem samsvarar 5% raunávöxtun.  Ávöxtunarkrafa langra ríkisskuldabréfa lækkaði verulega á markaði með tilheyrandi gengishagnaði sem skýrir góða ávöxtun.
Ríkissafn stutt Ríkissafn stutt hækkaði um 3,4% fyrstu níu mánuði ársins sem samsvarar 2,1% raunávöxtun. Lágt vaxtaumhverfi og væntingar um verðbólgu hafa mest áhrif á ávöxtun safnsins.
Innlánasafn Innlánasafnið hækkaði um 2,7% fyrstu níu mánuði ársins sem samsvarar 1,4% raunávöxtun. Safnið ávaxtar eignir sínar á bundnum innlánsreikningum og vega verðtryggð innlán rúm 92% af eignum safnsins.
Húsnæðissafn Húsnæðissafnið hækkaði um 3,2% fyrstu níu mánuði ársins sem samsvarar 1,9% raunávöxtun. Safnið ávaxtar eignir sínar að mestu í veðskuldabréfum, innlánum og í stuttum óverðtryggðum ríkisskuldabréfum.

Góð eignadreifing        

Ávöxtun verðbréfasafna ræðst af eignasamsetningu og ávöxtun einstakra verðbréfaflokka. Almenni lífeyrissjóðurinn leggur mikla áherslu á góða eignadreifingu til að draga úr heildaráhættu safnanna. Sjóðurinn birtir mánaðarlega upplýsingar um ávöxtunarleiðir þar sem m.a. má lesa um eignasamsetningu. Smellið hér til að skoða upplýsingablöðin.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.