Góð ávöxtun árið 2013

16. janúar 2014

Ávöxtunarleiðir Almenna lífeyrissjóðsins hækkuðu um 2,1 til 8,2% að nafnvirði á árinu 2013. Raunávöxtun var jákvæð í öllum söfnum fyrir utan Ríkissafn-langt sem lækkaði um 1,5% að raunvirði vegna hækkunar á ávöxtunarkröfu langra ríkisskuldabréfa. Hæst var raunávöxtunin á Ævisafni I eða 4,4%. Árið 2013 er þriðja árið í röð sem blandaðar ávöxtunarleiðir skila góðri ávöxtun og hefur Ævisafn I skilað 7,2% raunávöxtun á ári sl. þrjú ár og samtryggingarsjóður 5,9%. Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins verður haldinn þriðjudaginn 18. mars næstkomandi.

Blönduð söfn hækkuðu mest

Blandaðar ávöxtunarleiðir þ.e. Ævisafn I, II, III og samtryggingarsjóður nutu allar góðs af hækkun erlendra eigna vegna hagstæðrar þróunar á mörkuðum og góðrar ávöxtunar á innlendum hlutabréfum. Ævisafn I hækkaði mest á árinu 2013 eða um 8,2%, Ævisafn II um 7,4%, Ævisafn III um 6,2% og samtryggingarsjóður hækkaði um 7,5%.

Ríkissafn-langt hækkaði

Ríkissafn-langt hækkaði um 2,1% á árinu en hækkun  á ávöxtunarkröfu íbúðabréfa hafði neikvæð áhrif á ávöxtun safnsins. Ávöxtunarkrafa lengstu íbúðabréfanna hækkaði úr 2,7% í 3,04% sem samsvarar 4,3% verðlækkun á bréfunum.  Safnið lækkaði um 1,5% að raunvirði.

Ríkissafn-stutt hækkaði

Ríkissafn-stutt hækkaði um 3,7% að nafnvirði eða sem samsvarar verðbólgu ársins 2013.

Verðtryggð innlán hækkuðu

Á árinu varð 5,7% hækkun á Innlánasafninu. Fengnar verðbætur skýra stóran hluta ávöxtunarinnar þar sem verðbólga ársins var 3,7%. Verðtryggð innlán vega um 93% af Innlánasafninu.

 

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.