Almenni eykur grænar fjárfestingar

02. nóvember 2021

Almenni eykur grænar fjárfestingar

Almenni lífeyrissjóðurinn hefur skrifað undir viljayfirlýsingu gagnvart alþjóðlegu samtökunum Climate Investment Coalition (CIC) um að fjárfesta fyrir 300 milljónir Bandaríkjadala eða tæplega 40 milljarða króna í verkefnum sem tengjast hreinni orku og öðrum umhverfisvænum lausnum fram til ársins 2030.

Almenni er í hópi þrettán íslenskra lífeyrissjóða sem undirritað hafa slíka viljayfirlýsingu gagnvart CIC. Verkefnið var formlega kynnt í morgun á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP26, sem fram fer í Glasgow í Skotlandi.  Með yfirlýsingunni staðfesta íslensku sjóðirnir vilja til að auka grænar fjárfestingar og styðja þannig við markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu. Þar er meðal annars horft til ákvæða Parísarsamkomulagsins um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.

Horft verður til verkefna sem nýta jarðvarma en einnig er stefnan að styðja við aukna notkun annarra sjálfbærra orkugjafa með það að markmiði að stuðla að aukinni notkun hreinnar orku í samgöngum og atvinnustarfsemi. Mikil eftirspurn er eftir lausnum á þessu sviði og því er margt sem bendir til að þær geti skilað góðri langtímaávöxtun auk þess að stuðla að betri loftgæðum og bjartari framtíð.

Climate Investment Coalition eru alþjóðleg samtök en stofnaðilar eru danska umhverfis-, orku og veituráðuneytið, The Institutional Investors Group on Climate Change, Insurance & Pension Denmark og World Climate Foundation.  Markmið CIC er að stuðla að aukinni fjárfestingu í hreinni orku og öðrum umhverfislausnum.

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér:

Fréttatilkynning íslenskra lífeyrissjóða

Fréttatilkynning Climate Investment Coalition

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.